Hlý sumargjöf frá bæjarlögmanninum
Bæjarlögmaður Akureyrar, Inga Þöll Þórgnýsdóttir, er með skemmtilega hefð á sumardaginn fyrsta. Þá flaggar hún eigin skrifum og gefur sínum nánustu textaverk í sumargjöf.
Elstu textaverkin eru frá 2010 og hefðin því orðin 16 ára gömul. Inga Þöll sagði frá henni í útvarpsþættinum Sumargjöfin á RÚV sem Gígja Hólmgrímsdóttir hafði umsjón með.
Flaggar skrifunum einu sinni á ári
„Ég hef skrifað lengi og tekið mér góðar pásur inn á milli en ástæðan fyrir því að ég er að gefa þetta í sumargjöf er sennilega sú að ég á þetta ekki bara í skúffunni. Og það kostar ekkert að senda þetta í sumargjöf, maður þarf ekki útgefanda og það er enginn sem gagnrýnir mann. Ég held að ættingjar mínir, systur og börn, séu ekkert mikið að fara að gagnrýna mig þannig að mér fannst bara tilvalið að flagga þessu einu sinni á ári,“ segir Inga Þöll.
Textarnir eru ýmist minningar um staði eða fólk eða sögulegir þættir um fornmæður hennar. Í þættinum ræðir Inga um það hvernig hún hefur kafað í fjölskyldusöguna og uppgötvað þar ýmislegt áhugavert. Þá les hún einnig upp úr nokkrum af þeim textum sem hún hefur sent frá sér á sumardaginn fyrsta, t.d. frásögn af því þegar hún fór 11 ára gömul í sveit. Áhugasamir geta hlustað á þáttinn í heild sinni á vef RÚV.