Fréttir
Hluti Strandgötu lokaður vegna malbikunar
24.06.2026 kl. 11:50
Hluti Strandgötu er lokaður í dag á meðan suðurakrein götunnar verður malbikuð. Vinna hófst klukkan 9 í morgun og reiknað með að henni ljúki kl. 19 í kvöld. Ekki er hægt að beygja af Glerárgötu við Hof og inn á Strandgötu vegna framkvæmdanna. Hins vegar er vel hægt að keyra Strandgötuna í hina áttina sé komið úr austurátt.
Mikil hamagangur var í gangi á gatnamótunum, ekki voru þar aðeins stór og fyrirferðarmikil tæki heldur einnig fjöldi ferðamanna á ferð en þrjú skemmtiferðarskip eru í bænum í dag.
Í tilkynningu frá Strætisvögnum Akureyrar kemur fram að meðan Strandgata er lokuð ekur leið 6 um Grænugötu og Eyrarveg. Á þeim tíma er því ekki stoppað við biðstöðina Hjalteyrargata/Gránufélagsgata.
