Fara í efni
Fréttir

Hluta Borgarbrautar lokað vegna malbikunar

Malbikunarframkvæmdir við Borgarbraut hefjast á morgun, mánudaginn 7. júlí.

Byrjað verður á nyrðri akrein götunnar, frá hringtorgi við Glerártorg upp að Skarðshlíð, og verður því lokað fyrir umferð upp eftir Borgarbraut á þeim kafla götunnar kl. 8-21. 

Lokunin hefur áhrif á akstur vagna SVA á tveimur leiðum, nr. 2 og 3 á meðan lokunin stendur yfir, eins og sjá má á kortunum hér að neðan sem SVA birti á Facebook-síðu sinni

  • Leið 3 ekur upp Höfðahlíð í stað Borgarbrautar og síðan út á Borgarbraut úr Skarðshlíðinni.
  • Leið 2 ekur upp Þórunnarstræti í stað Borgarbrautar og Dalsbrautar.