Fara í efni
Fréttir

Hinsegin hátíð hefst á Norðurlandi eystra

Mynd frá Hinsegin hátíðinni í Hrísey. Aðsend.

Hinsegin hátíð á Norðurlandi eystra hefst á morgun, miðvikudaginn 18. júní og stendur til og með 22. júní. Fyrsta Hinsegin hátíðin var haldin í Hrísey árið 2023 en nú sameinast öll sveitarfélögin á Norðurlandi eystra um Hinsegin daga, ásamt samtökunum Hinsegin Norðurland og Hinsegin hátíðinni í Hrísey.

Markmið hátíðarinnar er að auka sýnileika LGBTQ+ samfélagsins og byggja upp samfélag sem er opið og öruggt fyrir alla íbúa og gesti, segir í fréttatilkynningu. Fólk er hvatt til að taka þátt í hátíðinni og samstöðu, hvort heldur sem það er með því að mæta á viðburði, skreyta, flagga eða með því að vekja athygli á hátíðinni á einhvern hátt.

 

Meðal annars verður upphafsdagur Hinsegin hátíðar áberandi í Bergi á Dalvík, þar sem bæði verður fánasmiðja og Húlladúllan mætir með læti. Myndir: hinseginhatid.is 

Dagskráin er afar fjölbreytt og er til að mynda boðið upp á ókeypis bíósýningar, tónleika og alls kyns uppákomur. Dagskrána er að finna á heimasíðu Hinsegin hátíðar.

Hinsegin hátíð á Instagram
Hinsegin hátíð á Facebook

Verkefnið Hinsegin hátíð á Norðurlandi eystra hlaut styrk úr Uppbyggingarsjóði Sóknaráætlunar Norðurlands eystra.