Hinsegin hátíð á vegum allra sveitarfélaga

Öll sveitarfélag á Norðurlandi eystra hafa tekið höndum saman og ætla að halda hinsegin hátíð dagana 18.–22. júní í sumar. Þetta er í fyrsta skipti sem sveitarfélögin standa saman að slíkri hátíð og stefnt er að því að viðburðir fari fram sem víðast í landshlutanum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Akureyrarbæ.
„Einstaklingar, félög og fyrirtæki eru hvött til þess að taka þátt í þessari einstöku hátíð með því að flagga regnbogafánum og allra helst standa fyrir viðburði í tengslum við hátíðina,“ segir í tilkynningunni.
Hvernig getur þú tekið þátt í hátíðinni?
- Haldið viðburð – t.d. tónlistaratriði, fræðsluviðburð eða skapandi uppákomu
- Boðið upp á sérstaka afslætti eða tilboð í tengslum við hátíðina
- Skreytt og lýst upp rýmið ykkar í litum hátíðarinnar
- Stutt við hátíðina með styrkjum eða samstarfi
- Flaggað fána hinseginleikans
Þau sem hafa áhuga á að leggja fram hugmynd eða halda viðburð geta haft samband við Elísabetu Ögn Jóhannsdóttur verkefnastjóra hátíðarinnar á netfangið hinseginhatid@akureyri.is.
Markmið hátíðarinnar er að auka sýnileika LGBTQ+ samfélagsins og byggja upp samfélag sem er opið og öruggt fyrir alla íbúa og gesti. Hátíðin byggir á því góða starfi sem unnið hefur verið í Hrísey en fyrsta Hinsegin hátíðin í Hrísey var haldin árið 2023.
Heimasíða hátíðarinnar er www.hinseginhatid.is en þar eru allar helstu upplýsingar að finna og munu viðburðir hátíðarinnar birtast þar þegar nær dregur hátíðinni. Hátíðin er einnig á samfélagsmiðlum og þar verður hægt fylgjast með undirbúningi hátíðarinnar og finna yfirlit yfir viðburði. Við hvetjum alla til að fylgja hátíðinni á þar.
- Facebook síða Hinsegin hátíðar - facebook.com/hinseginhatid
- Instagram síða Hinsegin hátíðar - https://www.instagram.com/hinseginhatid/
Verkefnið Hinsegin hátíð á Norðurlandi eystra hlaut styrk úr Uppbyggingarsjóði Sóknaráætlunar Norðurlands eystra.