Hinrik og Kristín eru skyndihjálparfólk ársins
Feðginin Hinrik Hauksson og Kristín Andrea Hinriksdóttir frá Akureyri eru skyndihjálparfólk ársins 2025. Þau veittu Bríeti, dóttur Hinriks og systur Kristínar, fyrstu hjálp eftir að hún fór skyndilega í hjartastopp. Þau fengu afhenta viðurkenningu á 1-1-2 deginum, sem haldinn var hátíðlegur á Glerártorgi í gær.
Fram kemur í frétt RUV að þær systur hafi setið saman við tölvuna á venjulegum ágústdegi í fyrra og ætlað að kaupa sér miða á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum. Þá hafi Bríet skyndilega misst meðvitund. Hinrik hringdi í Neyðarlínuna og þegar ljóst var að Bríet andaði ekki færðu þau hana á gólfið til að hefja endurlífgun.
Feðginin segja í samtali við RUV að þau hafi bæði fengið skyndihjálparþjálfun og vitað hvernig ætti að bera sig að en leiðbeiningar Neyðarlínunnar hafi verið þeim haldreipi í þessum hrikalegu aðstæðum. Það hafi skipt öllu máli að neyðarvörður talaði við þau allan tímann.
Innan við fimm mínútur hafi liðið frá því hringt var í Neyðarlínuna þangað til sjúkraflutningamenn voru komnir á staðinn. Lífi Bríetar var bjargað og í dag er hún með bjargráð sem stuðar í henni hjartað ef það fer að slá óeðlilega.
Skilaboð feðginanna eru skýr – allir ættu að kunna skyndihjálp. Þó að fæstir vilja hugsa til þess að þeirra nánustu gætu þurft á skyndihjálp að halda þá veit maður aldrei.