Fréttir
Hildur Arna ráðin framkvæmdastjóri Eims
02.09.2026 kl. 06:00
Hildur Arna Magnúsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Eims – félags um bætta nýtingu auðlinda á Norðurlandi. Hún tekur til starfa 1. október næstkomandi.
Hildur hefur yfir 10 ára reynslu af stjórnun, stefnumótun, nýsköpun, verkefnastjórnun og stjórnun verkefnasafna, einkum innan orku- og innviðageirans, að því er fram kemur í tilkynningu frá Eimi. „Hún hefur á ferli sínum leitt fjölbreytt þróunar- og umbótaverkefni, stýrt teymum og unnið að því að þróa hugmyndir og koma þeim í framkvæmd,“ segir þar.
Hildur er með M.Sc.-gráðu í rekstrarverkfræði (Management Engineering) frá Danmarks Tekniske Universitet (DTU), m.a. með áherslu á nýsköpun og stjórnun, og B.Sc.-gráðu í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands.
„Gríðarleg tækifæri“
„Ég er full tilhlökkunar að taka við starfi framkvæmdastjóra Eims. Ég sé gríðarleg tækifæri á Norðurlandi til að skapa ný verðmæti með því að nýta betur þær auðlindir, þekkingu og kraft sem þegar er til staðar á svæðinu. Eimur gegnir mikilvægu hlutverki við að leiða saman fólk, þekkingu og hugmyndir og hjálpa til við að breyta tækifærum í raunveruleg verkefni,“ segir Hildur í tilkynningunni.
„Hjá Eimi starfar öflugur hópur fólks með mikla sérþekkingu og metnað. Ég hlakka til að byggja áfram á því góða starfi sem þegar hefur verið unnið, og vinna með starfsfólki, bakhjörlum og samstarfsaðilum Eims að því að skapa ný tækifæri og verðmæti á Norðurlandi.“
- Eimur er samstarfsverkefni umhverfis-, orku-, og loftslagsráðuneytisins, Landsvirkjunar, Samtaka sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra, Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra, Norðurorku og Orkuveitu Húsavíkur.
- „Markmið Eims er að bæta nýtingu auðlinda á Norðurlandi með verðmætasköpun, sjálfbærni og nýsköpun að leiðarljósi,“ segir á vef félagsins.
Ottó Elíasson er fráfarandi framkvæmdastjóri Eims. Í tilkynningu félagsins segir að hann hafi gegnt mikilvægu hlutverki í uppbyggingu og þróun starfsemi félagsins „og með ráðningu Hildar tekur við nýr kafli í starfsemi Eims. Áfram verður lögð áhersla á að tengja saman fólk, fyrirtæki, sveitarfélög og þekkingu og styðja við verkefni sem stuðla að betri nýtingu auðlinda og aukinni verðmætasköpun á Norðurlandi,“ segir þar.
„Við erum ákaflega ánægð með ráðningu Hildar í starf framkvæmdastjóra Eims. Við erum sannfærð um að reynsla hennar, þekking og leiðtogahæfileikar muni nýtast félaginu vel. Með ráðningunni tekur við nýr kafli í starfsemi Eims, þar sem áfram verður lögð áhersla á að tengja saman fólk, fyrirtæki, sveitarfélög og þekkingu sem mun styðja við verkefni sem stuðla að betri nýtingu auðlinda og aukinni verðmætasköpun á Norðurlandi,“ segir stjórn Eims í áðurnefndri tilkynningu,