Fara í efni
Íþróttir

„Heimsmet“ Péturs Arnar í Landrisanum

Pétur Örn Birgisson (t.v.) bar sigur úr býtum í fjórþrautinni Landrisanum og setti nýtt brautarmet. Þóroddur Ingvarsson (t.h.) er upphafsmaður keppninnar og fyrsti Landrisinn.

Um síðastliðna helgi fór fram keppni í fjórþrautinni Landrisanum í Eyjafirði. Um sannkallaða þrekraun er að ræða, þar sem gengnir eru 50 km á skíðum, hjólaðir 60 km, syntir 2,5 km og að lokum eru hlaupnir ríflega 30 km.  Allt í einni beit. Stærðfræðikennarinn þrautseigi, Pétur Örn Birgisson, lauk þrautinni á nýju brautarmeti – og þar með nýju heimsmeti, að sögn aðstandenda keppninnar! 

Þetta er í fjórða sinn sem keppt er í Landrisanum en keppnisgreinarnar fjórar eru þær sömu og í Landvættaáskoruninni, sem naut mikilla vinsælda um árabil. Til þess að hljóta nafnbótina Landvættur þurfti hver og einn að ljúka keppnisgreinunum fjórum innan eins árs en í Landrisanum eru tímamörkin með þeim hætti að keppni hefst við sólarupprás og lýkur við sólarlag sama dag.

Tveir keppendur tóku þátt í ár

Tveir keppendur, þeir Pétur Örn og Bjarki Árnason, mættu til leiks að þessu sinni og við sólarupprás kl. 05:13 sunnudaginn 26. apríl hófst 50 kílómetra skíðagangan á göngusvæðinu í Hlíðarfjalli. Strax að henni lokinni var stigið upp á reiðhjól og hjólaður 60 kílómetra hringur um Eyjafjörð, með endamarkið við sundlaugina á Hrafnagili. Þar þurftu keppendur að stinga sér til sunds og synda hundrað ferðir, 2500 metra. Að lokum voru hlaupaskórnir reimaðir á fætur og hlaupið til Akureyrar um Eyjafjarðarbraut eystri, síðan hringinn í kringum bæinn og endað á því að stökkva gegnum gula rammann á Ráðhústorginu.

Pétur Örn lauk keppni á 9 klukkustundum og 55 mínútum og varð þar með fyrstur til að klára þrautina á innan við 10 klukkustundum. Pétur Örn Birgisson og er því Landrisinn 2026 og óformlegur Íslandsmeistari í fjórþraut og heimsmethafi í Landrisanum! Bjarki Árnason lauk keppni á 17 klukkustundum og 20 mínútum.

Ellefu hafa tekið þátt á fjórum árum og sjö klárað

Fyrir fróðleiksfúsa sundurliðast tími heimsmeistarans með þeim hætti að

  • 50 kílómetra skíðagöngunni lauk hann á 3 klst. og 33 mínútum. Skíðasporið var 1 km að lengd og það var gengið fram og til baka.
  • Að hjóla 60 kílómetra tók 2 klst og 2 mínútur.
  • Sundferðunum 100 lauk hann á tæpum 47 mínútum.
  • Þá var bara eftir að hlaupa tæplega 33 kílómetra og það kláraði Pétur á 2 klst. og 55 mínútum.

Ótalinn er tími milli þrauta sem fór í að skipta úr einum keppnisgalla í annan.

Pétur Örn Birgisson, Landrisinn 2026, örlítið lúinn eftir tæplega 10 klukkutíma þrekraun.

Landrisinn fór fyrst fram á 10 ára afmæli Landvætta, sem feðgarnir Ingvar Þóroddsson og Þóroddur Ingvarsson komu á fót á sínum tíma, en Þóroddur varð einmitt fyrsti Landrisinn árið 2023. Baldvin Ólafsson bar sigur úr býtum árið 2024 og Ingi Freyr Hilmarsson árið 2025.  Samtals hafa 11 keppendur tekið þátt þessi fjögur ár og 7 hafa skilað sér í mark innan tímamarka.