Menning
Heimalingar til loka ágúst í Dyngjunni
04.06.2026 kl. 09:30
Söngteikning í tré, verk Örnu Valsdóttur á sýningunni Heimalingar 2026.
Útilistasýningin Heimalingar 26 var opnuð í Dyngjunni - listhúsi í Eyjafjarðarsveit um síðustu helgi. Sumarið 2020 bauð listakonan Guðrún Hadda Bjarnadóttir félögum úr Myndlistafélaginu á Akureyri að standa saman að útilistasýningu við Dyngjuna, fjölbreytt listaverk sem þoldu veður og vind íslensks sumars voru sýnd þar til í þrjá mánuði og leikurinn hefur verið endurtekinn árlega síðan; þetta er því sjöunda árið í röð sem sýningin er haldin. Nafnið er þannig til komið „að staðarhaldari fékk að láni 2 undurfagra heimalninga, sem tóku sig vel út á sýningarsvæðinu og glöddu sýningargesti,“ skv því sem segir í tilkynningu.
Listamennirnir sem sýna í ár eru þessir:
Listamennirnir sem sýna í ár eru þessir:
- Aðalsteinn Þórsson
- Hadda
- Karl Guðmundsson
- Rósa Kristín Júlíusdóttir
- Hrefna Harðardóttir
- Arna Guðný Valsdóttir
- Gillian Pokalo
- Guðrún Pálína Guðmundsdóttir
- Þóra Sólveig Bergsteinsdottir
- Jonna - Jónborg Sigurðardóttir
- Erwin van der Werve
- Hlynur Hallsson
- Tereza Kocián
- Anna Þóra Karlsdóttir
- Dagrún Matthíasdóttir
- Brynhildur Kristinsdóttir
- Elísabet Ásgríms
- Ragnheiður Björk Þórsdóttir
- Hjördís Frímann
- Kristján Helgason
- Karólína Baldvinsdóttir
- Vikar Mar
- Anna Richardsdóttir
- Wolfgang Frosti Sahr
- Guðmundur Ármann
- Helgi Þórs
- Anna Gunnars
- Hólmfríður Bjartmarsdóttir
- Sigurður Ólafsson
Sýningin hófst 30. maí og opið verður alla daga frá kl. 14.00 - 17.00 til 31. ágúst.
„Aðgangur ókeypis og allir velkomnir að njóta menningar í fagurri náttúru Eyjafjarðarsveitar. Dyngjan - listhús er 17 mínútna akstur á Eyjafjarðarbraut Vestri (vegur 871),“ segir í tilkynningu.