Fara í efni
Fréttir

Hátt í 200 manns tóku þátt í ljósagöngunni

Myndir: Þorgeir Baldursson

Alþjóðlegur baráttudagur Sameinuðu þjóðanna gegn kynbundnu ofbeldi var í gær, 25. nóvember. Dagurinn markar jafnframt upphaf 16 daga átaks gegn kynbundnu ofbeldi og af því tilefni var farin ljósaganga frá Ráðhústorgi að Amtsbókasafninu.

Að göngunni stóðu Soroptimistaklúbbur Akureyrar, Zontaklúbbur Akureyrar, Zontaklúbburinn Þórunn hyrna og fulltrúar nemenda og stúdenta í MA og HA. Sunna Hlín Jóhannesdóttir bæjarfulltrúi og lögregluþjónar leiddu gönguna. Á Amtsbókasafninu var boðið upp á hressingu, erindi og ávörp, meðal annars frá Agnesi Blöndal aðstoðarsaksóknara og nemendum úr Menntaskólanum á Akureyri og Háskólanum á Akureyri.

Agnes Blöndal aðstoðarsaksóknari hélt erindi á Amtsbókasafninu.

Alþjóðlegt 16 daga átak gegn kynbundnu ofbeldi má rekja aftur til ársins 1991, en tímabil þess tengir á táknrænan hátt saman dagana 25. nóvember, sem er alþjóðlegur baráttudagur gegn ofbeldi gegn konum, og 10. desember, sem er alþjóðlegi mannréttindadagurinn. Markmið átaksins er að knýja á um afnám alls ofbeldis og styðja við réttindi, réttlæti og aðgerðir gegn ofbeldi.

Yfirskrift átaksins í ár hjá UN Women á Íslandi er Stafrænt ofbeldi er alvöru ofbeldi! þar sem áhersla er lögð á hatursummæli og stafrænt einelti og áhrif þess á þolendur og samfélagið í heild.