Fara í efni
Menning

Hátíðin WindWorks í norðri hefst á morgun

Tónleikar í Flugsafni Íslands á WindWorks tónlistarhátíðinni 2025.

Alþjóðlega tónlistarhátíðin WindWorks í Norðri 2026 verður haldin í fimmta skipti dagana 7. til 14. ágúst. Aðstandendur hátíðarinnar hafa fengið staðfest að hún sé eina tónlistarhátíðin í heiminum sem er eingöngu helguð blásturshljóðfærum.

Tónleikarnir á hátíðinni fara fram síðdegis, alla dagana meðan hún stendur yfir, og eru haldnir á söfnum og sögulegum stöðum á Akureyri, Húsavík, Dalvík og Svalbarðsströnd. Alls eru 15 viðburðir á hátíðinni í ár, allt frá einleikstónleikum upp í kvartetta.

Fyrstu tónleikarnir verða í Listasafninu á Akureyri á morgun, föstudaginn 7. ágúst kl. 15-15:30, og þar koma fram Gillian Haworth óbóleikari og Ármann Helgason klarinettuleikari. Þau flytja verk eftir innlend og erlend tónskáld og meðal annars verður frumflutt verk eftir Harald Vigni Sveinbjörnsson, Sospiri fyrir óbó og klarinett. „Sospiri (Andvörp) er dúó fyrir óbó og klarinett í fimm stuttum þáttum. Tvær raddir fléttast saman í fíngerðu samtali þar sem þær ýmist renna saman í sameiginlegan hljóm eða takast á í lifandi tónlistarlegum orðaskiptum. Flæðið er óþvingað og lífrænt, líkt og andardráttur sem kemur af sjálfu sér,“ segir í tónleikadagskrá.

Ármann Helgason og Gillian Haworth leika á Listasafninu á Akureyri föstudaginn 7. ágúst.

Listrænn stjórnandi hátíðarinnar er Pamela De Sensi og hún segir afar spennandi og áhrifaríkt að færa verk blástursbókmennta – allt frá endurreisnartónlist til nýstárlegra tilrauna samtímans – út úr hefðbundnum tónleikasölum og inn á söfn og aðra óhefbundnari tónleikastaði. Áhorfendur fái að upplifa náið og innilegt hljóðlandslag í nálægð við frábæra flytjendur.

Pamela segir að auk þess að gefa blásturshljóðfærum verulegt rými sé markmiðið með hátíðinni að kynna klassísk verk fyrir þessi hljóðfæri og hvetja tónskáld til að semja nýja tónlist fyrir þau. „Þess vegna kynnti ég staðartónskáld til leiks fyrir fjórum árum. Það er mér líka mjög mikilvægt að tengja staðartónskáldið okkar við tónlistarhópa sem koma erlendis frá. Þannig verður til ekki aðeins brú heldur líka ný tækifæri til vaxtar og atvinnu,“ segir Pamela.

Elín Gunnlaugsdóttir er staðartónskáld hátíðarinnar í ár

Staðartónskáld hátíðarinnar í ár er Elín Gunnlaugsdóttir og á hátíðinni verða frumflutt verk eftir hana sem taka mið af þeim stöðum sem þau verða flutt á. Þar á meðal er verk með flugvélahljóðum í Flugsafni Íslands á Akureyri og annað verk samið fyrir bandarískt málmblásturstríó sem frumflutt verður í Sjóminjasafninu á Húsavík (Safnahúsinu) en þar munu hljóð hafsins og vindsins renna saman við tónlistina.

Elín Gunnlaugsdóttir er staðartónskáld WindWorks tónlistarhátíðarinnar í ár.

Hljóðfæraleikararnir og tónskáldin eru víða úr heiminum og áhuginn erlendis frá hefur farið vaxandi. „Ég glöð og stolt yfir því að áhugi, bæði erlendra tónlistarmanna og tónskálda, hefur aukist til muna á síðustu tveimur árum. Næstum allar tónleikadagskrár sem voru sendar inn buðu upp á frumflutning á verkum sem tileinkuð eru hátíðinni,“ segir Pamela.

Þá skal þess getið að á meðan hátíðinni stendur verður í Listasmiðjunni Leifshúsum á Svalbarðsströnd listsýning nemenda í 5.-6. bekk Glerárskóla um þrjá listamenn á Akureyri. Umsjón með verkefninu hafði Elsa María Guðmundsdóttir, MA í menningarstjórnun og sjónlistakennari í Glerárskóla. Listafólkið sem var heimsótt voru Guðmundur Ármann Sigurjónsson, Egill Logi Jónasson, bæjarlistamaður Akureyrar 2025, og Arna Guðný Valsdóttir.

Nánari upplýsingar um tónleikadagskrána, flytjendur og tónskáld, má finna á vefsíðu hátíðarinnar windworksfest.com.