Fara í efni
Menning

Fjölskynjunarverk hreyfingar og hljóðs

Sigurður Guðjónsson opnar sýninguna „Leiðni leiðir“ í Verksmiðjunni á Hjalteyri laugardaginn 20. maí kl. 14. Sigurður hefur breytt 2.000 fermetra verksmiðjurými í fjölskynjunarverk hreyfingar og hljóðs. 

Í tilkynningu um sýninguna segir:

Verkið sem leikur með tíma og orku. Sigurður vinnur út frá miðju hússins lóðrétt upp og niður þrjár hæðir og hugsar sýninguna sem einn stóran skúlptúr
samofinn byggingunni sjálfri. Fyrir honum er verksmiðjan eitt stórt hljóðumhverfi, þannig að vængirnir – gamlar mjölgeymslur, austan og vestan megin, væru þá sem sitthvor rásin, hægri og vinstri, í einskonar stereo-mynd. Í milliloftinu eru holur en þar nær hljóð að smjúga inn á milli og elta gesti á ferð sinni í gegnum verkið. Hljóðheimur sýningarinnar er unninn í lögum og á uppruna sinn í rafhljóðum sem koma úr myndefninu sjálfu, sem og upptökum af endurómi í innviðum flygils, sem Tinna Þorsteinsdóttir leikur á. Það má því segja að hljóðmyndin eigi í samræðu við hljóminn í verksmiðjunni sjálfri og vídeóið við rými hennar.

Gústav Geir Bollason hefur umsjón með sýningunni og stendur hún til 16. júlí.

Í viðtali við Jóhannes Dagsson heimspeking segir Sigurður meðal annars um sýninguna: „Ég nálgast bygginguna sem eitt stórt hljóðumhverfi þannig að vængirnir á byggingunni eru fyrir mér sem sitt hvor rásin, hægri og vinstri, í einskonar stereo-mynd. Á milliloftinu eru holur sem hljóð ferðast á milli og eltir áhorfendur þegar þeir ganga í gegnum verkið. Á jarðhæðinni eru göng í miðju rýminu og þar má heyra upptökur af endurómi. Göngin eru fjörutíu metra löng og því tekur tíma fyrir hljóðin að berast inn í afkima byggingarinnar. Hljóðheimurinn í sýningunni er unninn í nokkrum lögum. Annar svegar er ég að vinna með rafhljóð sem koma úr myndefninu sjálfu, sem ég síðan umbreyti í vinnsluferlinu, og hins vegar er ég að vinna með upptökur af endurómi í innviði flygils sem píanóleikarinn Tinna Þorsteinsdóttir spilar á. Það má því segja að hljóðmyndin sem ég búi til eigi samræðu við hljóminn í verksmiðjunni sjálfri.“

Sigurður Guðjónsson (f. 1975) er þekktastur fyrir tímatengd verk sem rannsaka manngerðar vélar og tækniminjar, í tengslum við eðlislæga þætti þeirra. Með því að sameina mynd og hljóð með áhrifamiklum hætti, býr listamaðurinn til flókin, marglaga verk sem skapa sláandi upplifun fyrir áhorfandann. Sigurður hlaut Íslensku myndlistarverðlaunin árið 2018 fyrir sýninguna Innljós, sem samanstóð af vídeóinnsetningum í Sankti Jósepsspítala í Hafnarfirði. Sigurður Guðjónsson var fulltrúi Íslands á Feneyjartvíæringnum 2022.