Fara í efni
Menning

Hálfvitar, RAKEL, Atli Örvars og Valdimar

Hvaða menningarviðburðir eru í boði á svæðinu þessa vikuna? Akureyri.net skellir í samantekt í byrjun hverrar viku, þar sem lesendur geta séð hvað verður á seyði og penslað inn í dagatalið. Nú er Dymbilvika, fólk er í fríi og fullt á seyði í menningunni.

 

Tónleikar

Listasýningar

 

Dymbilvikan verður algjör konfektkassi fyrir tónlistaráhugafólk, en fjölbreytt úrval listamanna stíga á stokk.

Leiksýningar

  • Birtíngur hjá Leikfélagi Akureyrar. Samkomuhúsið, fimmtudag 2. apríl og laugardag 4. apríl kl. 20.00.
  • Átta konur - Leikfélag Hörgdæla að Melum. Miðvikudag 1. apríl, fimmtudag 2. apríl og laugardag 28. mars kl. 20.00. Næst síðasta sýningarhelgi.
  • Tom, Dick & Harry - Freyvangsleikhúsið. Næst síðasta sýningarhelgi. Sýningar föstudaginn 3. apríl og laugardag 4. apríl kl. 20.00.

 

Viðburðir

  • Páskafjör Siver Foxy á LYST – Laugardaginn 4. apríl kl. 20:30.
  • Borðspilakvöld eru alla þriðjudaga á Amtsbókasafninu kl. 17.00. Myndarlegt úrval borðspila er á safninu, og bæði hægt að nota þau eða koma með sín eigin. Öll velkomin.
  • Ritfangar hittast annan hvern þriðjudag á Amtsbókasafninu kl. 17-18.30. Sesselía Ólafs heldur utan um hópinn, en öll eru velkomin sem hafa áhuga á skapandi skrifum. 24. mars er næsti hittingur.
  • Pabbapíla á Verksmiðjunni - Alla þriðjudaga í vetur verður pabbapíla, kostar ekki neitt og pílur fyrir þá sem ekki eiga. Á milli 18 - 22.
  • Íslenskuþjálfun Rauða krossins á Amtsbókasafninu - Alla fimmtudaga frá 16.30 til 18.00 er boðið upp á íslenskuspjall fyrir öll sem vilja bæta sig í íslensku í góðum félagsskap.
 

Endilega hafðu samband á rakel@akureyri.net ef að þú vilt koma þínum viðburði á listann. Hann þarf að vera opinn öllum.