Hagnýtt námskeið fyrir foreldra
Velferðarsvið Akureyrarbæjar og Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) bjóða foreldrum barna á aldrinum 0-10 ára upp á námskeiðið Uppeldi sem virkar – færni til framtíðar. Á námskeiðinu fá foreldrar hagnýt verkfæri til að efla færni barna, styðja við jákvæða hegðun og fyrirbyggja erfiðleika.
Á vef Akureyrarbæjar segir að meðal þess sem fjallað verði um séu áskoranir í daglegu lífi, ástæður erfiðrar hegðunar og hvernig hægt er að beita aga á jákvæðan og árangursríkan hátt. Markmiðið er að styrkja foreldra í foreldrahlutverkinu og efla færni sem nýtist bæði foreldrum og börnum til framtíðar.
Boðið verður upp á tvö námskeið, annað í október og hitt í nóvember. Þau fara fram í húsnæði HSN í Sunnuhlíð og kostar 5.000 krónur fyrir fjölskyldu. Námskeiðsgögn og léttar kaffiveitingar eru innifalin í verðinu og flest stéttarfélög niðurgreiða námskeiðið.
Ráðgjafar Öskjunnar sjá um kennslu. Umsóknarfrestur á októbernámskeiðið er til og með 7. október en á nóvembernámskeiðið til og með 26. október.
Skráning og nánari upplýsingar fást hjá Öskjunni í tölvupósti á askjan@akureyri.is.