Fara í efni
Fréttir

Gul viðvörun á miðnætti fyrir Norðurland eystra

Foktjón hefur orðið á Siglufirði í morgun. Mynd: Björgunarsveitin Strákar/Landsbjörg.

Djúp lægð gengur nú yfir landið og hefur valdið samgöngutruflunum og usla víða. Meðal annars hefur orðið foktjón á Siglufirði og flugferðum  um Akureyrarflugvöll verið aflýst.

Norðurland eystra hefur að mestu sloppið við óveðrið enn sem komið er enda tekur gul viðvörun Veðurstofunnar ekki gildi hér á svæðinu fyrr en á miðnætti í kvöld þegar lægðin lýkur ferð sinni norður yfir landið. Spá Veðurstofunnar fyrir Norðurland eystra gerir ráð fyrir norðvestanvindi, 13-20 metrum á sekúndu með slyddu eða snjókomu og lélegu skyggni, einkum á fjallvegum. Hvassast verður nyrst á svæðinu. Von er á snörpum vindhviðum og geta lausamunir fokið. Varasamt ferðaveður. 

Óveðrið hefur meðal annars valdið foktjóni á Siglufirði og hefur Björgunarsveitin Strákar verið í óveðursverkefnum í dag. Lögreglan á Norðurlandi eystra biðlaði til Siglfirðinga í morgun að halda sig heima.

Gul viðvörun á Norðurlandi eystra í kvöld

Appelsínugul veðurviðvörun hefur verið í gildi á Norðurlandi vestra og Vestfjörðum, en hún fellur úr gildi síðdegis í dag. Veðurviðvaranir falla almennt úr gildi á sunnan- og vestanverðu landinu síðdegis í dag og í kvöld, en síðast á Norðaustur- og Austurlandi. Gul viðvörun er í gildi á Norðurlandi eystra þar til í fyrramálið og fram að hádegi á morgun á Austurlandi.

Staða viðvarana á miðnætti í kvöld, en þá tekur gildi gul veðurviðvörun fyrir Norðurland eystra. Skjáskot af vedur.is.

Í viðvörunum Veðurstofu Íslands kemur fram að óvenjulágur þrýstingur, allt niður í 934 hektópasköl, verði yfir landinu í dag. Allvíða væri von á mikilli ölduhæð nærri ströndinni og lýkur á hárri sjávarstöðu og jafnvel sjávarflóðum við suður-, austur- og norðurströndina.

Vegir á óvissustigi, flugferðum aflýst

Vegir víða um land hafa hins vegar verið á óvissustigi, Öxnadalsheiði þeirra á meðal, síðan í morgun. Í viðvörun Vegagerðarinnar kemur fram að búast megi við mikilli snjókomu eða slyddu, slæmu skyggni og lokunum vega. Af vefmyndavélum á Öxnadalsheiði að dæma er vegurinn auður nú og tveggja gráðu hiti.

Vegagerðin hvetur vegfarendur til að fylgjast vel með upplýsingum um færð og veður á Umferðin.is. Þar eru upplýsingar á íslensku, ensku og pólsku. Þá er ráðlagt að fylgjast með ölduhæð og sjávarstöðu á Sjólag.is.

Stórstreymt er og gæti sjór gengið á land, meðal annars er hætta á að flæði yfir Akureyrarflugvöll ef fram heldur sem horfir. Sjávarhæð við Akureyri var í hámarki um kl. 14 í dag og verður aftur upp úr miðnætti í kvöld.

Flugi Atlantic Airways milli Akureyrar og Edinborgar í Skotlandi var aflýst í morgun, flugi Norlandair til og frá Constable Point á Grænlandi var aflýst, en þegar þetta er skrifað er flug SmartWings frá Akureyri til Vilníus í Litháen enn á áætlun með brottför kl. 18:35. Morgun- og hádegisflugi Icelandair milli Akureyrar og Reykjavíkur var einnig aflýst, en flugferðir seinnipartinn í dag eru á áætlun.