Gul veðurviðvörun fram á föstudagsmorgun
Veðurstofan hefur gefið út gula veðurviðvörun fyrir Norðurland eystra, Austurland, Austfirði og miðhálendið þar sem von er á norðaustan kalda og snjókomu með köflum í innsveitum og á heiðum. Á Norðurlandi eystra gildir viðvörunin frá kl. 10 í dag til kl. 9 í fyrramálið, föstudagsmorgun.
Ekki er víst að þetta norðanskot hafi teljandi áhrif hér á Akureyri, nema hvað hitastigið varðar, en helst er von á snjókomu í innsveitum og á heiðum austantil á svæðinu. Snælínan verður í um 100-200 metra hæð eftir hádegi í dag, fimmtudag, en í kvöld og næstu nótt eru líkur á snjókomu eða slyddu á láglendi, segir meðal annars í viðvörun Veðurstofunnar, sem hvetur bændur til að huga að lambfé.
Rétt er fyrir fólk sem er á ferðinni að hafa í huga að aðstæður á fjallvegum geta orðið varasamar fyrir ökutæki á sumardekkjum.
Veðurspá fyrir allt landið frá því í morgun hljómar á þessa leið:
Spáð er norðaustan 5-10 metrum á sekúndu, en 10-15 m/sek. norðvestantil á landinu og með suðausturströndinni. Rigning, slydda eða snjókoma verður norðaustan- og austanlands. Mörk rigningar og snjókomu færast neðar þegar líður nær kvöldinu. Búast má við rigningu sunnanlands, en úrkomuminna verður um landið vestanvert. Hiti verður frá tveimur gráðum í innsveitum norðaustanlands upp í 12 gráður á suðvesturlandi.
Á morgun verður norðaustanvindur, 8-15 m/sek. Rigning með köflum á sunnanverðu landinu, en slydda eða snjókoma norðan- og austantil. Úrkomulítið norðvestanlands. Hiti 1 til 9 stig, mildast vestast á landinu.