Gul og appelsínugul veðurviðvörun

Uppfærð frétt.
Veðurstofa Íslands hefur gefið út gular og appelsínugular veðurviðvaranir fyrir allt landið þar sem von er á norðan hvassviðri eða stormi á morgun og þriðjudag. Gul viðvörun tekur gildi á Norðurlandi eystra um hádegisbil á morgun, mánudag, en breytist í appelsínugula viðvörun hér á svæðinu frá kl. 3 aðfararnótt þriðjudags og varir til kl. 15 á þriðjudag, en þá falla viðvaranir fyrir Norðurland eystra úr gildi.
Snjókoma til fjalla á Norðurlandi getur valdið samgöngutruflunum. Akureyringar mega svo áfram búast við norðlægri átt og vætu frá miðvikudegi, en öllu mildara veðri en á mánudag og þriðjudag.
Gul veðurviðvörun tekur gildi um hádegisbil á mánudag á Norðurlandi. Skjáskot af vedur.is.
Viðvörun fyrir Norðurland eystra:
- Gul – Norðan 8-13 m/s og slydda eða snjókoma til fjalla með hálku á vegum og versnandi akstursskilyrðum, og einnig á láglendi undir kvöld. Varasamar aðstæður fyrir ökutæki vanbúin til vetraraksturs.
- Appelsínugul – Norðan 15-20 m/s og snjókoma og skafrenningur. Búast má við versnandi akstursskilyrðum með samgöngutruflunum. Varasamar aðstæður fyrir ökutæki vanbúin til vetraraksturs og ekki ráðlegt að leggja í ferðalög til fjalla.
Frá kl. 3 aðfararnótt þriðjudags tekur appelsínugul viðvörun gildi á Norðurlandi eystra og stendur til kl. 15 á þriðjudag.
Veðurspá fyrir allt landið sem gefin var út í morgun:
- Vestlæg eða breytileg átt 3-10 m/s og rigning með köflum. Hiti 6 til 13 stig.
- Gengur í norðan 10-18 á morgun. Rigning eða slydda með köflum um landið norðanvert og snjókoma til fjalla. Rigning suðaustanlands, en þurrt suðvestantil. Kólnar í veðri. Samfelld slydda eða snjókoma á Norðaustur- og Austurlandi annað kvöld.