Guðþjónusta sjómanna og hópsigling – MYNDIR

Sá fallegi siður hefur verið tekinn upp á ný að heiðra fyrrverandi sjómenn. „Hér áður fyrr heiðruðu fagfélög sjómanna alltaf sína menn, einn til tvo á sjómannadaginn hverju sinni; Sjómannafélag Eyjafjarðar gerði þetta, einnig skipstjórafélagið og vélastjórafélagið, og stundum félag matsveina,“ segir Sigfús Ólafur Helgason, sem réðst í það verkefni fyrir þremur árum að endurvekja hátíðahöld sjómanna sem höfðu að mestu lagst af hér í bæ. Þetta datt allt niður fyrir nokkrum árum en nú er Sjómannafélag Eyjafjarðar aftur komið að borðinu og heiðrar sína menn. Ég vil því hvetja hin fagfélög sjómanna til að koma í þetta með okkur og halda áfram að gera sjómannadaginn á Akureyri að þeirri hátíð sem honum ber, m.a. með því að heiðra skipstjóra, stýrimenn, vélstjóra og matsveina í þessum stóra og mikla útgerðarbæ.“