Fara í efni
Menning

Guðrið Hansdóttir með tónleika á Græna

Færeyska tónlistarkonan Guðrið Hansdóttir kemur fram á Græna hattinum á Akureyri í kvöld, fimmtudagskvöldið 22. október. Tónleikarnir eru hluti af níu tónleika hringferð hennar um Ísland, sem helguð er nýjustu plötu hennar, Sýrublað.

Platan kom út fyrr á árinu og er sú sjöunda sem Guðrið sendir frá sér í fullri lengd. Hún er unnin af tónlistarmanninum Høgna Lisberg og blandar saman lágstemmdri þjóðlagatónlist og draumkenndum indípopphljómi sem hefur einkennt tónlist Guðriðar. Sjálf líkir hún tónlistinni við það að bíta í súrublað; hún sé „fersk, stökk, græn og örlítið súr“.

Guðrið hefur verið áberandi í færeysku og norrænu tónlistarlífi frá aldamótum, bæði sem sólólistakona og sem hluti af rafpoppdúettinum BYRTA. Hún hefur meðal annars komið fram á tónlistarhátíðunum Iceland Airwaves, SXSW, SPOT og By. Fyrri plata hennar, Gult myrkur, var valin plata ársins á færeysku tónlistarverðlaununum.

Guðrið er ekki ein á tónleikaferðinni heldur nýtur hún liðsinnis Høgna Lisberg, Vinjars Egilsnes Petersen og Ólavs Gaard, sem leika á gítar, trommur og hljómborð.

Tónlist Guðriðar sækir meðal annars áhrif til Joni Mitchell, Kate Bush og Aldous Harding. Á Græna hattinum gefst því tækifæri til að heyra nýju lögin í lifandi flutningi ásamt tónlist úr ferli hennar.

Tónleikarnir hefjast klukkan 21 og miða má nálgast á vefsíðu Græna hattsins.

  • Nýju plötuna, Sýrublað, er hægt að nálgast á Spotify