Menning
Guðni Th. - Friðrik Dór - Valdimar og Listarölt
01.10.2026 kl. 10:00
Hvaða viðburðir á sviði menningar og mannlífs eru í boði á svæðinu þessa vikuna? Akureyri.net skellir í samantekt í hverri viku, þar sem lesendur geta séð hvað verður á seyði og penslað inn í dagatalið.
Tónleikar
- Tólf tóna kortérið – Listasafninu á Akureyri, laugardag 3. október kl. 15 og aftur kl. 16. Kortérslangir tónleikar þar sem mæðgurnar Margrét Árnadóttir og Erla Mist Magnúsdóttir syngja saman. Flutt verða verk eftir Daníel Þorsteinsson, Sigvalda Kaldalóns og Freymóð Jóhannsson.
- Friðrik Dór & SinfoniaNord – Menningarhúsinu Hofi, laugardag 3. október kl. 16:30 og 20. „Hans einstaki stíll sem er blanda af poppi, dans og R&B mun nú sameinast í mögnuðum útfærslum SinfoniaNord og popphljómsveitar Friðriks Dórs,“ segir í kynningu.
- Valdimar – Græna hattinum, laugardag 3. október kl. 21. „Hljómsveitin hefur verið iðin við kolann undanfarið, gefið út þrjú ný lög og vinnur að nýrri plötu. Á tónleikunum má búast við skemmtilegri blöndu af gömlum slögurum og glænýju efni,“ segir í kynningu.
- Afmælistónleikar kórs eldri borgara – Glerárkirkju, sunnudaginn 4. október kl. 15. 40 ára afmælistónleikar kórs eldri borgara, Í fínu formi. Stjórnandi Petra Björk Pálsdóttir og meðleikari Valmar Väljaots.

Hljómsveitin Valdimar leikur á Græna hattinum á laugardagskvöldið.
Viðburðir
- Sæskrímslabúrið – Amtsbókasafninu, fimmtudaginn 1. október kl. 16:30-18:30. Opin vinnustofa fyrir börn og foreldra. Börnin eru Þau eru hvött til að læra um íslensk sjávarskrímsli, tjá ótta sinn í gegnum list og leyfa honum síðan að fá útrás í leikrænni tjáningu.
- Ókeypis prufutími í salsa & opið danskvöld – Vamos, fimmtudaginn 1. október kl. 20. Ókeypis salsakennsla milli kl 20:00-20:30 og svo opið dansgólf. Öll velkomin og það þarf ekki að mæta með félaga né kunna neitt í salsa.
- Súpa - Listvinnustofa fyrir 7-9 ára börn – Flóru, Sigurhæðum, laugardag 3. október og sunnudag 4. október kl. 11-14. Í þessari skemmtilegu listvinnustofu munu börn kanna náttúrulega liti úr rauðrófum, kaffi og túrmeriki og gera tilraunir með áferð, liti og ólíka fleti.
- Vald hinna veiku - Saga landhelgismálsins 1971-1974 – Minjasafninu, laugardaginn 3. október kl. 13-14. Guðni Th. Jóhannesson, prófessor í sagnfræði við Háskóla Íslands og fyrrverandi forseti Íslands, kynnir nýja bók sína um þorskastríð og landhelgismál.
- Listasmiðja á Glerártorgi – Laugardaginn 3. október kl. 14-16. Opin listasmiðja fyrir börn og foreldra, hægt er að koma við hvenær sem er á meðan smiðjan stendur yfir. Í lokin verður haldin sýning á verkunum á Glerártorgi sem stendur út október í tilefni af Bleikum október.
- Sýningarleiðsögn – Listasafninu, sunnudaginn 4. október kl. 13. Sigríður Örvarsdóttir safnstjóri Listasafnsins og sýningarstjóri verður með leiðsögn um sýninguna Í skugga átaka. Á þessari sýningu eru stríðsátök skoðuð með augum listamanna frá ólíkum löndum, þar sem listin verður vettvangur fyrir reynslu, minningar og tilfinningar sem mótast í skugga átaka.

Guðni Th. Jóhannesson kynnir nýja bók sína um þorskastríð og landhelgismál á Minjasafninu á laugardaginn.
Listsýningar
- Öðruvísí orð – Rakel Hinriksdóttir. Sýningaropnun á bókasafni Háskólans á Akureyri, fimmtudaginn 1. október kl. 16. Öðruvísi orð - myndræn túlkun á samtali við náttúruna er myndlistar- og sögusýning þar sem Rakel túlkar samtal manns og náttúru með myndverkum, ljósmyndum og texta.
- Með mínum augum – Nonni. Deiglunni, laugardaginn 3. október kl. 13-17. Afmælissýning Jóns Viðars Valsteinssonar (Nonna). Hann sýnir verk sem hann hefur málað heima hjá sér síðustu ár. „Nonni er með greindarskerðingu en hann hefur mikinn áhuga á list og tjáir sig mikið í gegnum hana. Hann hlakkar mikið til að leyfa ykkur að sjá verkin sín á sýningunni,“ segir í kynningu.
- Listarölt 2026 – Laugardaginn 3. október og sunnudaginn 4. október kl. 13-17. Listarölt er helgi opinna vinnustofa á Akureyri og í nágrenni. Listamenn opna dyr sínar og bjóða gestum að kynnast verkunum og sköpunarferlinu.
- Sjálfsástarvírus - Minnisvarði #3 – Katrín Inga Jónsdóttir Hjördísardóttir. Listasafnið á Akureyri. Útilistaverk á svölum safnsins.
- Ný aðföng í safneign – Kristín Gunnlaugsdóttir. Listasafnið á Akureyri. Sýningin stendur til 31. desember 2026.
- Svartur blettur – Logi Bjarnason. Listasafnið á Akureyri. Sýningin stendur til 10. janúar 2027.
- Í skugga átaka – Samsýning. Listasafnið á Akureyri. Sýningin stendur til 10. janúar 2027.
- 1/3 söngskemmtun, saumur, ló og þvottaleiðbeiningar – Berglind Jóna Hlynsdóttir. Listasafnið á Akureyri. Sýningin stendur til 10. janúar 2027.
- Hughrif - Litir - Form II – Valin verk fyrir sköpun og fræðslu. Listasafnið á Akureyri. Sýningin stendur til 7. mars 2027.
- Í snertingu – Samsýning þriggja listamanna. Listasafnið á Akureyri og Lystigarðurinn á Akureyri. Sýningin stendur til 7. mars 2027.
- Bergmál umbreytingar: Út í garð – Charlotte Søeborg Ohlsen. Listasafnið á Akureyri. Sýningin stendur til 7. mars 2027.
- Hversdagsland – Baldvin Ringsted. Listasafnið á Akureyri. Sýningin stendur til 7. mars 2027.
- Opnun ársins – Brák Jónsdóttir. Flóra menningarhús, Sigurhæðum. Sýningin stendur til 10. október 2026.

Rakel Hinriksdóttir opnar sýningu á bókasafni Háskólans á Akureyri á fimmtudaginn.
Endilega hafðu samband á valur@akureyri.net ef að þú vilt koma þínum viðburði á listann. Hann þarf að vera opinn öllum.