Fara í efni
Fréttir

Guðmundur tekur við af Gunnari hjá Frosti

Guðmundur H. Hannesson, til vinstri, og Gunnar Larsen, fráfarandi framkvæmdstjóri Frosts.

Guðmundur H. Hannesson tók um mánaðamótin við starfi framkvæmdastjóra Kælismiðjunnar Frost af Gunnari Larsen, sem verið hefur framkvæmdastjóri síðustu 15 ár. Guðmundur var einn af stofnendum fyrirtækisins árið 1993, framan af vann hann við uppsetningu búnaðar og þjónustu en frá 2001 hefur hann stýrt sölu- og tæknideild fyrirtækisins.

Mikil tækifæri framundan

„Kælismiðjan Frost hefur vaxið gríðarlega allt frá stofnun og ég sé mikil tækifæri á okkar þjónustusviðum á komandi árum. Okkar stærsti markaður er og verður í sjávarútvegi og hryggjarstykkið er heimamarkaðurinn hér á Íslandi, uppsetning og viðhald frysti- og kælikerfa í vinnslum og skipum. Vöxtur fyrirtækisins hefur verið mestur á erlendum mörkuðum í sölu og uppsetningu frystikerfa, auk þess sem tæknileg ráðgjöf og hönnun kerfa er stöðugt vaxandi þjónustuþáttur. Sú þróun mun halda áfram,“ segir Guðmundur í tilkynningu frá fyrirtækinu.

Stærstur hluti erlendra verkefna Kælismiðjunnar Frost síðustu ár hefur verið á sjávarútvegssviðinu á norðlægum slóðum, í Kanada, Noregi og Færeyjum auk þess sem stór verkefni eru í gangi um þessar mundir í Rússlandi, bæði í landvinnslum og nýjum frystiskipum.

Gunnar Larsen, fráfarandi framkvæmdastjóri, mun starfa í fyrirtækinu næstu mánuði og ljúka ýmsum verkefnum en segist ánægður með árin að baki. „Ég var fyrir nokkru búinn að ákveða að láta staðar numið eftir 15 ár í starfi og þetta er góður tímapunktur. Fyrirtækið hefur tekið miklum breytingum síðan ég kom hér til starfa á sínum tíma. Veltan hefur nær tífaldast, mikil sókn verið á erlenda markaði, veruleg fjölgun starfsmanna og þannig má áfram telja. Þetta hafa verið mjög skemmtileg ár með góðu samstarfsfólki,“ segir Gunnar.

Hluthafar Kælismiðjunnar Frost eru 19 talsins en hópur starfsmanna á meirihluta í félaginu. Aðrir hluthafar eru fjárfestingafélögin Kaldbakur og KEA. Starfsmenn eru rúmlega 60 talsins. Höfuðstöðvar fyrirtækisins eru á Akureyri en starfsstöðvar eru í Garðabæ, á Selfossi og í Kolding í Danmörku.