Fara í efni
Íþróttir

Gríðarleg barátta en Valur nú í kjörstöðu

Bjarni Ófeigur Valdimarsson í harðri baráttu við Valsvörnina í kvöld. Myndir: Ármann Hinrik

KA tapaði naumlega, 33:30, fyrir Val í kvöld á heimavelli í undanúrslitum Íslandsmótsins í handbolta eftir gríðarlega baráttu í mögnuðum leik. Valur hefur þar með unnið tvo leiki, þrjá sigra þarf til að komast í úrslit og liðin mætast þriðja sinni í Reykjavík næsta mánudagskvöld. Deildarmeistarar Vals standa óneitanlega afar vel að vígi en öll nótt er auðvitað ekki úti hjá KA-mönnum – ekki síst ef Ágúst Elí Björgvinsson markvörður verður í ham! En verkefnið er vissulega ærið gegn frábæru Valsliði.

KA-strákarnir steinlágu í fyrstu viðureign liðanna að Hlíðarenda og þegar fyrri hálfleikurinn í kvöld var tæplega hálfnaður leist manni satt að segja ekki orðið á blikuna. Eftir jafnar upphafsmínútur settu Valsmenn í annan gír og komust sjö mörkum yfir þegar 13 og hálf mín. var liðin; staðan var þá 12:5.

Það var ekki síst gríðarlega góð vörn Vals sem gerði það að verkum hvernig leikurinn þróaðist. Valsmenn kunna þá list að skella því sem næst í lás og grípa svo til þess beitta vopns að taka „hraða miðju“ eins og það er kallað og skora aðeins fáeinum sekúndum eftir markið hinum megin. Eftir að hafa skorað eftir erfiða sókn er eins og blaut tuska í andlitið að fá á sig mark strax.

Magnús Dagur Jónatansson átti fína spretti í sókninni, hér vippar hann skemmtilega yfir Björgvin Pál Gústavsson markvörð Vals í seinni hálfleik.

KA átti í miklum erfiðleikum í sókninni, Einar Rafn Eiðsson gerði tvö fyrstu mörkin utan af velli en annars eiga skyttur liðsins eriðara uppdráttar en fyrr á leiktíðinni, meiðsli hafa sett strik í reikninginn, til dæmis hjá þeim frábæra Bjarni Ófeigi Valdimarssyni. Aftur á móti er hann, og hefur verið, frábær í því að mata samherja sína; í gær skapaði hann til dæmis 14 tækifæri fyrri liðsfélagana og 13 urðu að marki.

Munurinn á liðunum í hálfleik var fimm mörk, staðan þá 19:14 fyrir gestina. Eins og sá sem þetta skrifar hefur oft nefnt eru KA-menn þekktir fyrir það að gefast ekki upp þótt á móti blási, og sá gállinn var á þeim í seinni hálfleik. Þeir komu tví- eða jafnvel þríefldir til leiks; annað hvort var að duga eða drepast og KA-strákarnir börðust hetjulega, minnkuðu muninn jafnt og þétt og jöfnuðu í fyrsta sinn, 22:22, þegar Einar Rafn skoraði úr víti.

KA náði aldrei forystu en jafnt var á öllum tölum þar til í stöðunni 26:26, Valur komst svo tveimur mörkum yfir en Jens Bragi jafnaði 29:29 með marki af línunni. Enn var jafnt 30:30, Dagur Gautason jafnaði þá úr horninu þegar rúmar þrjár mínútur voru eftir. Spennan var í hámarki eins og gefur að skilja, stemningin í húsinu eins og í þá gömlu, góðu daga – en klaufaleg mistök í sókninni urðu þess valdandi að mörkin urðu ekki fleiri. Valsmenn héldu hins vegar haus og skoruðu í þrígang það sem eftir lifði leiks.

Þegar KA-menn náðu að stilla saman strengi í vörn gekk þeim vel að eiga við Valsarana, að ekki sé talið um eftir að Ágúst Elí hrökk í gang í markinu. Hann byrjaði afar rólega en sýndi stórkostleg tilþrif þegar á leið – varði alls 16 skot, mörg eftir að Valsmenn komust í dauðafæri.

Dagur Gautason jafnar 30:30 þegar rúmar þrjár mínútur voru eftir af leiknum.

Hraustlega var tekist á í leiknum, stundum var dansað á línunni ef svo má segja og einu sinni var farið hressilega yfir strikið, sem kostaði Arnór Ísak Haddsson leikmann KA og Valsarann Þorgils Jón Svölu Baldusson rautt spjald. Lítið var eftir af fyrri hálfleik og Valsmenn í sókn, brotið var á Þorgils Jóni og þegar þeir féllu um koll hann og Logi Gautason sló Þorgils KA-manninn. Þegar Valsarinn stóð á fætur kom Arnór Ísak aðvífandi, ásamt fleirum, og kýldi Þorgils í andlitið. Þar bar kappið fegurðina ofurliði.

KA-menn ná vonandi vopnum sínum fyrir þriðja leikinn á mánudaginn. Þeir ganga augljóslega ekki allir heilir til skógar, norski hornamaðurinn Morten Linder lék til að mynda aðeins hluta fyrri hálfleiks og gerði ekkert mark, Bjarna Ófeigs er áður getið og Einar Rafn gerir hvað hann getur. Ekki dugar að byrja jafn illa og hingað til því mikil orka fer í að vinna upp jafn mikinn mun og Valsmenn náðu. Enn er von þó hún hafi dvínað en trúin flytur fjöll.

Mörk KA: Einar Rafn Eiðsson 8 (þar af 4 víti), Magnús Dagur Jónatansson 4, Dagur Gautason 4, Bjarni Ófeigur Valdimarsson 4, Einar Birgir Stefánsson 4, Jens Bragi Bergþórsson 3, Arnór Ísak Haddsson 1, Logi Gautason 1, Ágúst Elí Björgvinsson 1.

Varin skot: Ágúst Elí Björgvinsson 16, þar af 1 víti (35,6%), Bruno Bernat 0.

Mörk Vals: Arnór Snær Óskarsson 10 (þar af 6 víti), Bjarni I. Selvindi 5, Allan Norðberg 5, Gunnar Róbertsson 3, Þorgils Jón Svölu Baldursson 2, Andri Finnsson 2, Magnús Óli Magnússon 2, Daníel örn Guðmundsson 1, Daníel Montero 1, Þorvaldur Örn Þorvaldsson 1, Björgvin Páll Gústavsson 1.

Varin skot: Björgvin Páll Gústavsson 13, þar af 1 víti (31,7%), Jens Sigurðarson 0.

Leikskýrslan á vef HSÍ

Öll tölfræðin frá HB Statz

Ágúst Elí Björgvinsson markvörður KA byrjaði rólega en var stórkostlegur aftir að hann komst í ham í kvöld.