Fréttir
Grænu pokarnir komnir aftur í dreifingu
01.05.2026 kl. 18:00
Grænu maíspokarnir eru ómissandi á ölll heimili á Akureyri en Akureyrarbær sér bæjarbúum fyrir þessum pokum.
Dreifing á grænu maíspokunum, sem Akureyringar nota undir lífræna ruslið, stendur nú yfir. Pokarnir hafa verið ófáanlegir um skeið.
Akureyrarbær skrifaði á heimasíðu sína þann 20. mars að maíspokarnir væru á þrotum hjá dreifingaraðila en að nýjum birgðum yrði dreyft um mánaðarmótin. Nú virðast þessi mál loks vera komið í lag, því dreifing hófst nýlega á pokunum.
Í dag, 1. maí, voru t.d. sprækir Kiwanismenn úr Kaldbak, á hlaupum um bæinn að dreifa pokum, svo væntanlega verða fljótlega öll heimili á Akureyri komin með græna poka. Pokarnir eru hluti af sorpflokkunarkerfi bæjarins fyrir lífrænan úrgang og íbúar hafa fengið þá endurgjaldslaust.