Götum í miðbænum lokað fram yfir þjóðhátíð

Vegna framkvæmda og hátíðarhalda næstu daga á Akureyri var nokkrum götum á miðbæjarsvæðinu lokað fyrir umferð vélknúinna ökutækja á föstudaginn og verða lokaðar til klukkan átta að morgni miðvikudagsins 18. júní. Það eru rauðmerktu göturnar sem eru lokaðar.
„Lokunin tekur til göngugötunnar (sem er lokuð skv. sumarlokun 2025), skipagötu frá Ráðhústorgi að Hofsbót, Strandgötu frá Hofsbót að Ráðhústorgi og Túngötu frá Bankastíg að Ráðhústorgi sem og Listagils, þó verður opið upp neðsta hluta gilsins fyrir gesti á Hótel KEA,“ segir á vef Akureyrarbæjar.
„Þriðjudaginn 17. júní verður hluti Þórunnarstrætis frá gamla húsmæðraskólanum og suður fyrir hjúkrunarheimilið Hlíð lokaður frá kl. 12.15 til 13.00 vegna skrúðgöngu þjóðhátíðardagsins, sem og leiðin niður að bílastæðum við sjúkrahúsið og inn að Lystigarði (Búðartröð).“