Götulokanir næstu vikur við Lækjargötu
Framkvæmdir eru að hefjast við endurnýjun regnvatnslagnar neðst í Lækjargötu, frá Spítalavegi og til austurs að Hafnarstræti. Reiknað er með að framkvæmdir muni standa í um tvo mánuði og gripið verður til tímabundinna götulokana á framkvæmdatímanum.
Það er Norðurorka sem stendur fyrir framkvæmdunum en auk endurnýjunar regnvatnslagnar verður einnig unnið að endurnýjun kaldavatnslagnar og rafveitulagnar, auk þess sem lagðar verða nýjar tengingar við hitaveitu. Að því er fram kemur í frétt á vef Norðurorku er nauðsynlegt að loka götum við framkvæmdasvæðið en þær verða þó ekki lokaðar allan tímann á meðan framkvæmdum stendur.
Að því er fram kemur í fréttinni má í grófum dráttum skipta verkinu í tvennt. Fyrst verða lagnir í stígnum norðan Laxdalshúss og upp í Aðalstræti endurnýjaðar. Síðan verður endurnýjað upp að gatnamótum Spítalavegar og Lækjargötu.