Fréttir
Götulokanir í miðbæ um helgina
12.06.2026 kl. 08:00
Lituðu svæðin sýna þá hluta Túngötu, Strandgötu og Skipagötu sem er lokað um helgina. Mynd: akureyri.is.
Akureyrarbær hefur tilkynnt um tímabundnar lokanir gatna í miðbænum dagana 12.-14. júní.
Vegna fjölbreyttrar dagskrár í miðbænum um helgina verður þremur götum lokað að hluta.
- Túngata - frá Bankastíg að Strandgötu
- Strandgata - milli Ráðhústorgs og Geislagötu
- Skipagata - milli Ráðhústorgs og Hofsbótar
Ofantaldar götur verða lokaðar fyrir umferð vélknúinna ökutækja frá kl. 16 föstudaginn 12. júní til kl. 23 sunnudaginn 14. júní.