Fara í efni
Mannlíf

Geta bófarnir grafið sig út úr klefunum?

Hermann Karlsson, aðalvarðstjóri hjá Lögreglunni á Norðurlandi eystra. Mynd af Facebook síðu embættisins.

Síðustu vikur hafa lögreglumenn heimsótt „hressa krakka í nokkrum skólum ásamt því að hafa fengið krakkana í heimsókn til okkar á stöðina,“ segir á Facebook síðu Lögreglunnar á Norðurlandi eystra í morgun.

„Þau eru dugleg að spyrja spurninga og velta hlutunum vel fyrir sér, sem við reynum að svara eftir okkar bestu getu. Vangaveltur voru um það hvort bófarnir gætu grafið sig út úr klefunum og hvort aðalvarðstjórinn okkar væri með ekta gulltönn,“ segir á síðu lögreglunnar, þar sem þessar skemmtilegu myndir voru birtar í morgun.

„Við erum alltaf ánægð að fá að hitta hressa og áhugasama krakka og minnum foreldra á að tala um lögregluna sem bandamenn en ekki nota okkur sem „grýlu“.