Gestir HUH Yun-hee fá að stroka jökulinn út
Sýning suður-kóresku listakonunnar HUH Yun-hee – „Jökull og tími“ – stendur yfir í Deiglunni í Listagilinu en lýkur á föstudag. Hún er gestalistamaður mánaðarins hjá Gilfélaginu og óhætt að segja að sýningin sé áhugaverð að því leyti að gestir fá að taka þátt með óvenjulegum hætti.
HUH Yun-hee opnaði sýninguna á mánudaginn með gjörningi þar sem hún teiknaði veggmynd – jökul – og á hverjum degi býðst gestum að taka þátt í að stroka teikninguna út! Táknrænt vegna þess að jöklar heimsins minnka hratt vegna hlýnunar jarðar, sumir eru horfnir og aðrir heyra brátt sögunni til.
Varð að finna leið til að sjá jökul
Á sýningunni eru fleiri verk sem listakonan skapaði eftir að hún kom til landsins, svo og myndbandsverk sem hún vann heima í Kóreu.
Opið er í Deiglunni frá kl. 17.00 til 20.00 og þeir sem hafa áhuga á að stroka út hluta jökulsins af veggnum, eða vilja skoða önnur verk, ættu að hafa hraðar hendur því sýningunni lýkur kl 20 á föstudagskvöldið.
Listakonan hafði aldrei séð jökul með eigin augum fyrr en hún kom til Íslands fyrir skömmu, sem gestalistamaður Gilfélagsins. Jöklar höfðu hins vegar verið henni ofarlega í huga síðan árið 2020 eftir að hún las grein um bráðnun jökla á Norðurslóðum og að brátt yrðu þeir engir vegna hlýnunar jarðar.

Tilhugsunin skelfdi hana. „Þetta var á Covid-tímabilinu þegar ég gat engan hitt og þurfti að gera hlé á því að vinna með fólki. Ég hugsaði um jökla, las bækur um loftslagsbreytingar, fletti upp myndum og horfði á myndbönd. Ég byrjaði að teikna jökla. Ég hef teiknað jökla í sex ár án þess að hafa nokkurn tíma séð einn slíkan, því þá er ekki að finna í Kóreu. Mér fannst ég verða að finna leið til að sjá jökul.“
Hún fékk inni sem gestalistamaður á Akureyri og þá loks gafst tækifæri til að láta drauminn rætast. Listakonan ók í átta tíma frá Akureyri að Jökulsárslóni, skollið var á myrkur þegar hún kom á áfangastað, en upplifunin var augljóslega mjög sterk; henni fannst ísjakarnir í lóninu sem lifandi verur í tungsljósinu. „Ég gat næstum heyrt andardrátt þeirra,“ segir hún. Í kyrrðinni heyrði listakonan ísinn bresta; jakarnir gátu ekki fest svefn, fannst henni, og það fyllti hana sorg. „Þegar ég sneri aftur næsta morgun hitti ég þá aftur í sólskininu. Það var fallegt.“
HUH Yun-hee fór víðar og upplifði aðra jökla, m.a. Langjökul og alls staðar fannst henni jafn magnað að koma.

HUH Yun-hee býr og starfar á Jeju í Kóreu. „Hún hefur mótað sér sérstakan listrænan stíl þar sem hún fléttar saman tilvistarlegar hugleiðingar og umhverfisvitund; hún kannar uppruna mannlegrar tilvistar og hringrásir náttúrunnar,“ segir í kynningu á listakonunni. „Hún notar kol, unnin úr brenndum viði, sem helsta efnivið sinn. Með því færir hún teikningu og útstrokun yfir í hugleiðsluferli – þar sem ummerki lífsins breytast í málverk og gjörningalist.“
HUH Yun-hee á samfélagsmiðlum
Vefsíða: www.yunheehuh.com
Instagram: yunhee.huh