Fara í efni
Fréttir

Gerður í Blush: Lengi gælt við að koma norður

Eigandi Blush, Gerður Huld Arinbjarnardóttir og kærasti hennar, Jakob Fannar Hansen. Mynd af vef Glerártorgs.

Kynlífstækjaverslunin Blush var opnuð á Glerártorgi í dag og segir eigandinn, Gerður Arinbjarnardóttir, það var mikil tímamót. Þetta er önnur verslun Blush og sú fyrsta utan höfuðborgarsvæðisins. 

„Það hefur verið eftirspurn fyrir því að fá Blush norður í mörg ár og við höfum lengi gælt við það að koma norður. En maður þarf alltaf að finna réttu tímasetninguna og aðstæðurnar og loksins er það komið núna. Svo er ég náttúrulega sjálf frá Akureyri og hef alltaf haft mjög sterka strauma norður. Heima fyrir mér hefur alltaf verið Akureyri. Þannig þetta er fullkomið tækifæri og núna hefur maður meiri afsökun til að koma oftar norður,“ segir Gerður í viðtali sem birtist á heimasíðu Glerártorgs í dag.

Þar segir hún að verslunin á Glerártorgi verði nokkurs konar minni útgáfa af versluninni í Kópavogi og verði með um 70% af vöruúrvalinu sem er fyrir sunnan. Gerður segir mikinn metnað hafa verið lagðan í innréttingar og útlit verslunarinnar.

„Það er ekki þannig að við séum að opna einhverja ódýrari útgáfu hér, heldur verður búðin jafn falleg ef ekki fallegri fyrir norðan. Staðsetningin er frábær og ég held að þetta sé í fyrsta skipti sem kynlífstækjaverslun hefur opnað í verslunarmiðstöð. En á sama tíma erum við á hliðinni á húsinu og erum með sérinngang. Þannig við erum með þetta „privacy“ sem kannski einhverjir vilja og það gefur okkur líka meiri sveigjanleika, því við getum stjórnað okkar opnunartíma meira sjálf. Af því að þetta rými var laust þá fannst okkur ekki neitt annað koma til greina en að vera á Glerártorgi þar sem stemmingin og stuðið er. Við teljum að Glerártorg sé að fá svolítið nýtt líf og andlitslyftingu og þá er ekki verra að fá kynlífstækjaverslun. “

Gerður segir að netverslun Blush muni ennþá starfa frá Kópavogi og senda út um allt land. En nú geti Akureyringar komið í verslun og skoðað tækin, fundið áferðina og titringin sem skiptir afar miklu máli við val á kynlífstæki.

„Ég hef mikla trú Akureyringum og Norðurlandinu og að þau séu tilbúin að fá kynlífsverslun í sinn landshluta. Það er engin önnur kynlífstækjaverslun hér eins og er. Það sem kemur líka mörgum á óvart er að verslunin okkar fyrir sunnan er stærri en netverslunin. Þannig hugmyndin sem við höfðum fyrir einhverjum árum, um að fólk vilji ekki fara inn í kynlífstækjaverslanir, er svolítið farin. Þetta er ekki jafn mikið feimnismál og það var. Viðhorf til kynlífstækja hefur breyst mjög mikið og okkur hefur tekist á góðan hátt að taka ímyndina upp á hærra plan.“

Smellið hér til að lesa meira á vef Glerártorgs.