Geimferðalangur – falleg ábreiða Ágústs Þórs
Tónlistarmaðurinn Ágúst Þór Brynjarsson sendi á dögunum frá sér ábreiðu af jólalaginu Geimferðalangur sem Frostrósir gáfu út á sínum tíma en er upprunalega erlent jólalag – A Spaceman came traveling.
„Frostrósir gáfu Geimferðalangur út árið 2008 og er það alveg risastórt lag með þvílíkum söngdívum, stórhljómsveit og nánast held ég öllum kórum landsins, svo að ég ákvað að fara algjörlega í hina áttina og taka þetta upp bara með gítar og söng. Við fórum inn í Grundarkirkju í Eyjafjarðarsveit til að fá svona þennan hátíðlega kirkjuhljóðheim og þetta heppnaðist mjög vel fannst mér!“ segir Ágúst Þór.
„Geimferðalangur hefur alltaf verið uppáhalds jólalagið mitt svo það er mjög gaman að vera búinn að setja minn stíl á þetta og gefa út! Ég henti skilaboðum á eina af Frostrósunum miklu, hana Regínu Ósk og sagði að það þyrfti nú einhver af þeim drottningum að heyra þetta fyrst og hún var bara mega sátt með þetta,“ segir hann.
Góður endir á svakalegu ári
Geimferðalangur er fimmta lagið sem Ágúst Þór gefur út á árinu „og er eiginlega bara frábært uppgjörslag á þessu gjörsamlega bilaða ári sem ég hef átt,“ segir hann, en Ágúst Þór tók þátt í Söngvakeppni Sjónvarpsins, „og svo voru fleiri skemmtileg verkefni tengt sjónvarpinu og tónlistinni.“
Síðustu mánuði hefur Ágúst Þór einbeitt sér að því að semja tónlist og segir að næsta vor komi út 8 til 10 laga plata sem hann muni fylgja eftir með tónleikaferð um landið.
Ágúst Þór hitar upp fyrir Ásgeir Trausta, þann þekkta og magnaða tónlistarmann, á tónleikum á Græna hattinum annað kvöld. „Það verður gaman að flytja Geimferðalang fyrir fullan hatt!“ segir Ágúst Þór.
- Hér er hlekkur á Geimferðalang á Spotify: Geimferðalangur
Instagram: agust.music
TikTok: agust.music