Mannlíf
Gamla myndin: veistu hvar þetta er?
02.10.2026 kl. 06:00
Vikulega birtist gömul ljósmynd á akureyri.net í samstarfi við Minjasafnið á Akureyri. Þetta er 308. gamla myndin frá safninu sem birtist hér, ekki er ofsagt að þær njóti gríðarlegra vinsælda á meðal lesenda víða um land; nýjustu tölur frá Minjasafninu herma að því hafi borist upplýsingar um 87,5% allra myndanna.
Hefur þú, lesandi góður, hugmynd um hvar þessi stórskemmtilega mynd er tekin? Jafnvel hvaða stúlkur eru á myndinni og við hvaða tækifæri hún er tekin? Þeir sem kunna að búa yfir frekari upplýsingum um myndina eða sögum henni tengdar eru hvattir til að senda þær á netföngin hg@minjasafnid.is og skapti@akureyri.net
- Myndin hér fyrir neðan birtist fyrir viku. Lesandi varpaði fram þeirri spurningu hvort þetta væri gamla húsið í Hagalandi í Þistilfirði, en aðrar tillögur hafa ekki borist.

- Allar gömlu myndirnar frá Minjasafninu á Akureyri sem akureyri.net hefur birt er hægt að skoða HÉR