Fara í efni
Mannlíf

Gamla myndin: veistu hvar þetta er?

Vikulega birtist gömul ljósmynd á akureyri.net í samstarfi við Minjasafnið á Akureyri. Þetta er 302. gamla myndin frá safninu sem birtist hér, þær vekja jafnan mikil viðbrögð og upplýsingar hafa borist um langflestar.

Hefur þú, lesandi góður, hugmynd um hvar myndin að ofan er tekin?  Þeir sem kunna að búa yfir upplýsingum um myndina eru hvattir til að senda þær á netföngin hg@minjasafnid.is og skapti@akureyri.net

Mynd dagsins má líka sjá hér 

  • Myndin hér fyrir neðan birtist á föstudegi fyrir viku. Lesendur sem lögðu orð í belg voru sammála að þetta sé skátaskálinn Valhöll sem kvenskátafélagið Valkyrjur á Akureyri byggði. Húsið var í landi Veigastaða í Vaðlaheiði og tekið í notkun 1946. Nefnt var að konan fyrir utan húsið gæti verið Erla Gunnarsdóttir.
  • Ábending barst um að fjallað hefði verið um Valhöll og Valkyrjur í Helga-Degi 2. mars 1996. Þar er m.a. rifjuð upp fyrsta gistingin í húsinu í maí 1946.  Hér má sjá þá fínu umfjöllun á timarit.is:

    https://timarit.is/page/2714718?iabr=on#page/n7/mode/2up/search/Valkyrjur%20Valh%C3%B6ll 

  • Allar gömlu myndirnar frá Minjasafninu á Akureyri sem akureyri.net hefur birt er hægt að skoða HÉR