Mannlíf
Gamla myndin: veistu hvar þetta er?
07.08.2026 kl. 06:00
Vikulega birtist gömul ljósmynd á akureyri.net í samstarfi við Minjasafnið á Akureyri. Þetta er 300. gamla myndin frá safninu sem birtist hér, þær vekja jafnan mikil viðbrögð og upplýsingar hafa borist um langflestar.
Hefur þú, lesandi góður, hugmynd um hvar myndin að ofan er tekin? Þeir sem kunna að búa yfir upplýsingum um myndina eru hvattir til að senda þær á netföngin hg@minjasafnid.is og skapti@akureyri.net
Mynd dagsins má líka sjá hér
- Myndin hér fyrir neðan birtist á föstudegi fyrir viku. Lesendur voru fljótir að átta sig; þetta er barnaskólinn í Ólafsfirði, sem nú er hluti Grunnskóla Fjallabyggðar. Kennsla hófst í húsinu haustið 1950

- Allar gömlu myndirnar frá Minjasafninu á Akureyri sem akureyri.net hefur birt er hægt að skoða HÉR