Mannlíf
Gamla myndin: veistu hvar þetta er?
17.07.2026 kl. 06:00
Vikulega birtist gömul ljósmynd á akureyri.net í samstarfi við Minjasafnið á Akureyri. Þetta er 297. gamla myndin frá safninu sem birtist hér, þær vekja jafnan mikil viðbrögð og upplýsingar hafa borist um langflestar.
Hefur þú, lesandi góður, hugmynd um hvar myndin að ofan er tekin? Þeir sem kunna að búa yfir upplýsingum um myndina eru hvattir til að senda þær á netföngin hg@minjasafnid.is og skapti@akureyri.net
- Myndin hér fyrir neðan birtist á föstudegi fyrir viku. Þetta er gamli bærinn í Spónsgerði í Hörgársveit, skammt frá Möðruvöllum.

- Allar gömlu myndirnar frá Minjasafninu á Akureyri sem Akureyri.net hefur birt er hægt að skoða HÉR