Mannlíf
Gamla myndin: veistu hvar þetta er?
03.07.2026 kl. 06:00
Vikulega birtist gömul ljósmynd á akureyri.net í samstarfi við Minjasafnið á Akureyri. Þetta er 295. gamla myndin frá safninu sem birtist hér, þær vekja jafnan mikil viðbrögð og upplýsingar hafa borist um langflestar.
Hefur þú, lesandi góður, hugmynd um hvar myndin er tekin; hvaða brú er þarna í byggingu? Þeir sem kunna að búa yfir upplýsingum um myndina eru hvattir til að senda þær á netföngin hg@minjasafnid.is og skapti@akureyri.net
- Myndin hér fyrir neðan birtist á föstudegi fyrir viku. Margir vörpuðu fram hugmyndum um hvar á landinu þetta er; ólíklegt er að nokkur brú hafi farið jafn víða, ef svo má segja! En niðurstaðan er ljós: Það er brúin yfir Grímsá við Oddsstaði í Lundarreykjadal sem þarna er í byggingu. Hún mun hafa verið tekin í notkun árið 1950.


- Allar gömlu myndirnar frá Minjasafninu á Akureyri sem Akureyri.net hefur birt er hægt að skoða HÉR