Mannlíf
Gamla myndin: veistu hvar þetta er?
01.05.2026 kl. 06:00
Vikulega birtist gömul ljósmynd á akureyri.net í samstarfi við Minjasafnið á Akureyri. Þetta er 286. gamla myndin frá safninu sem birtist hér, þær vekja jafnan mikil viðbrögð og upplýsingar hafa borist um langflestar.
Hefur þú, lesandi góður, hugmynd um hvar þessi mynd er tekin og ef til vill hvenær? Hvaða menn gætu þetta verið? Þeir sem kunna að búa yfir upplýsingum um myndina eru hvattir til að senda þær til Minjasafnsins á Akureyri og ritstjórnar akureyri.net, á netföngin hg@minjasafnid.is og skapti@akureyri.net
- Svart hvíta myndin hér fyrir neðan birtist á föstudegi fyrir viku. Ein mjög góð ábending barst, svohljóðandi, frá Katrínu Úlfarsdóttur grunnskólakennara í Hrafnagilsskóla og leiðsögumanni:
Húsið á myndinni er mjög líkt húsi sem núna stendur á Grísará, við hliðina á Jólagarðinum. Það var upphaflega reist á Espigrund í Hrafnagilshreppi, árið 1930 að því er ég best veit. Árið 1967 keyptu foreldrar mínir húsið sem þá hafði staðið autt um árabil og fluttu það að Grísará og heitir það síðan Grísará 2.Það sést ekki vel á myndinni hvað er í bakgrunninum en á Sarpinum er að finna mynd þar sem sést í Espigrund og þar er einhver runnagróður hægra megin eins og á myndinni. Á neðstu hæðinni var inngangurinn og þar var líka eldhúsið. Þegar húsið var flutt var neðsta hæðin opnuð þannig að það var hægt að bakka vagni undir húsið og veggirnir voru síðan brotnir niður þangað til húsið stóð á vagninum.
Ég læt hér fylgja með myndir úr myndaalbúmi móður minnar frá flutningunum þar sést líka að húsið á Espigrund var klætt með steinblikki eins og húsið á myndinni.

- Katrínu eru hér með færðar innilegar þakkir fyrir fróðlegar og skemmtilegar upplýsingar. Spennandi verður að sjá hvort einhver getur staðfest að um sama hús er að ræða.

- Allar gömlu myndirnar frá Minjasafninu á Akureyri sem Akureyri.net hefur birt er hægt að skoða HÉR