Fara í efni
Mannlíf

Gamla myndin: veistu hvar þetta er?

Vikulega birtist gömul ljósmynd á akureyri.net í samstarfi við Minjasafnið á Akureyri. Þetta er 280. gamla myndin frá safninu sem birtist hér, þær vekja jafnan mikil viðbrögð og upplýsingar hafa borist um langflestar.

Hefur þú hugmynd um, lesandi góður, hvar þessi frábæra mynd er tekin? Þekkirðu jafnvel nöfn fólksins, allra eða einhvers? Þeir sem kunna að búa yfir upplýsingum um myndina eru hvattir til að senda þær til Minjasafnsins á Akureyri og ritstjórnar akureyri.net, á netföngin hg@minjasafnid.is og skapti@akureyri.net

  • Myndin hér að neðan birtist fyrir viku. Þetta mun vera bærinn Litli-Hóll í Hrafnagilshreppi (nú Eyjafjarðarsveit) og Dvergstaðir í fjarska.

  • Allar gömlu myndirnar frá Minjasafninu á Akureyri sem Akureyri.net hefur birt er hægt að skoða HÉR