Mannlíf
Gamla myndin: veistu hvar þetta er?
06.06.2025 kl. 08:15

Vikulega birtist gömul ljósmynd á Akureyri.net í samstarfi við Minjasafnið á Akureyri. Þetta er 239. gamla myndin frá safninu sem birtist hér, þær vekja jafnan mikil viðbrögð og upplýsingar hafa borist um langflestar.
Hefur þú, lesandi góður, hugmynd um hvaða kirkjustaður þetta er?
Þeir sem kunna að búa yfir upplýsingum eru hvattir til að senda þær til Minjasafnsins á Akureyri og ritstjórnar Akureyri.net, á netföngin hg@minjasafnid.is og skapti@akureyri.net
- Myndin hér fyrir neðan birtist fyrir viku. Á myndinni eru að öllum líkindum geitur á bænum Bakka í Fnjóskadal, myndin tekin rétt norðan við bæinn Sörlastaði og horft til norðurs. Búið var með geitur á Bakka fram undir 1960 þegar jörðin fór í eyði.