Mannlíf
Gamla myndin: veistu hvar þetta er?
30.05.2025 kl. 06:00

Vikulega birtist gömul ljósmynd á Akureyri.net í samstarfi við Minjasafnið á Akureyri. Þetta er 238. gamla myndin frá safninu sem birtist hér, þær vekja jafnan mikil viðbrögð og upplýsingar hafa borist um langflestar.
Hefur þú, lesandi góður, hugmynd um hvar þessi fallega mynd er tekin? Fróðlegt verður að sjá hvort geiturnar komi fólki e.t.v. á sporið.
Þeir sem kunna að búa yfir upplýsingum eru hvattir til að senda þær til Minjasafnsins á Akureyri og ritstjórnar Akureyri.net, á netföngin hg@minjasafnid.is og skapti@akureyri.net
- Myndin hér fyrir neðan birtist fyrir viku. Nokkrar ábendingar hafa borist en enginn þeirra virðist rétt. Fólk er því hvatt til að skoða myndina betur.