Fara í efni
Mannlíf

Gamla myndin: veistu hvar þetta er?

Vikulega birtist gömul ljósmynd á Akureyri.net í samstarfi við Minjasafnið á Akureyri. Þetta er 237. gamla myndin frá safninu sem birtist hér, þær vekja jafnan mikil viðbrögð og upplýsingar hafa borist um langflestar.

Hefur þú, lesandi góður, hugmynd um hvar þessi mynd er tekin?

Þeir sem kunna að búa yfir upplýsingum eru hvattir til að senda þær til Minjasafnsins á Akureyri og ritstjórnar Akureyri.net, á netföngin hg@minjasafnid.is og skapti@akureyri.net

  • Myndin hér fyrir neðan birtist fyrir viku. Ábending barst þess efnis að hún kynni að vera frá bænum Miðgerði í Dalsmynni, eins og mynd númer 221 og eru lesendur vinsamlega beðnir um að skoða þessa betur. Hugsanlega þekkir einhver manninn á myndinni ef grannt er skoðað.