Fara í efni
Fréttir

Gagnrýna rútuakstur og fækkun bílastæða

Í skipulagstillögunni að útfærslu vistgötunnar er umferð gangandi og hjólandi sett í forgang og akbrautin sjálf er þriggja metra breið. Í mörgum athugasemdanna við tillöguna er gagnrýnt að beina eigi umferð hópferðabifreiða um götuna. Mynd: Vinnslutillaga Akureyrarbæjar.

Alls bárust 15 athugasemdir við breytingartillögu Akureyrarbæjar að deiliskipulagi Hafnarstrætis milli Kaupvangsstrætis og Drottningarbrautar, flestar frá íbúum og rekstraraðilum fyrirtækja við götuna. Frestur til að gera athugasemdir rann út 11. mars.

Þegar deiliskipulagstillagan var samþykkt heyrðust strax ákveðnar gagnrýnisraddir, sem beindust m.a. að stórfelldri fækkun almennra bílastæða á svæðinu og að beina ætti umferð hópbifreiða inn eftir götunni, frá horninu við Kaupvangsstræti. Rekstraraðilum við götuna fannst tillagan sniðin að þörfum nýja Skáld hótelsins, sem senn verður tilbúið, og gagnrýndu bæjaryfirvöld fyrir skort á samráði við undirbúning málsins.

Nú þegar öllum hefur gefist færi á að koma með athugasemdir við skipulagstillöguna má sjá að flestar þeirra snúa að þeim atriðum sem upp eru talin hér að framan og vikið var að í ofangreindri frétt akureyri.net.

  • Sex athugasemdanna eru frá eigendum íbúða við götuna. Ein vegna Hafnarstrætis 79 og fimm vegna Hafnarstrætis 81 (gamli Tónlistarskólinn) en í því húsi eru 25 íbúðareiningar. Í þeim er gerð athugasemd við fækkun bílastæða í götunni (tillagan gerir ráð fyrir að almennum stæðum fækki úr 49 í lágmark 14) með tilheyrandi vandræðum fyrir íbúa og gesti. Að auki er tæpt á fleiri atriðum eins og skorti á samráði og upplýsingagjöf á undirbúningsstigi verkefnisins og að hagsmunir Skáld hótels hafi fengið óhóflegt vægi við hönnun og skipulag götunnar.
  • Heima atvinnuhúsnæði ehf., eigandi Hafnarstrætis 83-89 (Hótel KEA), gagnrýnir að skv. tillögunni falli burt núverandi aðkomuleiðir fyrir vörur og þjónustu, sem eru nauðsynlegar fyrir reksturinn í húsinu. Þar sem í tillögunni sé ekki gert ráð fyrir útfærslu á slíkum þjónustustæðum skapist veruleg rekstraráhætta, hætta á ólögmætri stöðvun ökutækja og möguleg umferðar- og öryggisvandamál í götunni. Þar að auki sé ekki gert ráð fyrir að bílastæði fyrir hreyfihamlaða verði áfram framan við veitingastaðinn á jarðhæðinni en í ljósi meginreglna um algilda hönnun og jafnt aðgengi að þjónustu sé nauðynlegt að aðgengi hreyfihamlaðra sé fullnægjandi.
  • Rekstraraðili veitingastaðanna í húsnæði Hótel KEA, Múlabergs og Teríunnar, tekur undir athugasemdir eiganda húsnæðisins. Bent er á að flutningabílar og þjónustuaðilar komi að jafnaði 4-6 sinnum á dag og áframhaldandi aðgengi að þjónustustæðum sé rekstrarlega nauðsynlegt og skerðing þess geti haft veruleg og neikvæð áhrif á rekstur veitingastaðanna.
  • Athugasemdir frá öðrum rekstraraðilum við götuna – Hótel Akureyri, Vorhús og hárstofunni Amber – beinast meðal annars að skorti á samráði við vinnslu tillögunnar, skerðingu á aðgengi viðskiptavina og að hagsmunir Skáld hótels virðast hafa vegið þyngra í nýja skipulaginu en hagsmunir þeirra rekstraraðila sem hafi lengi verið með starfsemi við götuna. Þá er gagnrýnt að ekki virðist hafa farið fram greining á áhrifum fyrirhugaðrar umferðar hópbifreiða suður eftir götunni og að sleppistæði hópbifreiða skuli vera sett beint framan við Vorhús og Hótel Akureyri.
  • Í einni athugasemdinni segir að deiliskipulagsuppdrátturinn sé óljós og bent á ónákvæmni í skipulagstillögunni en í henni er talað um breytingin taki til götustæðis Hafnarstrætis að Drottningarbraut en Hafnarstræti sé hvergi með gatnamót við Drottningarbraut. Þá er einnig gerð athugasemd við stofnstíg hjólreiða í tillögunni og talin upp nokkur atriði sem gangi gegn hönnunarleiðbeiningum fyrir hjólreiðar, sem gefnar voru út af Vegagerðinni.

Allar innsendar athugasemdir er hægt að lesa inni í Skipulagsgátt, auk þess að skoða deiliskipulagstillöguna sjálfa og hugmyndir að hönnun sem fylgja tillögunni.