Fara í efni
Fréttir

Gagnaver atNorth hlýtur alþjóðleg verðlaun

Gagnaver atNorth á Akureyri.

Gagnaversfyrirtækið atNorth hlaut nýlega umhverfisverðlaun Data Center Dynamics (DCD) fyrir nýstárlega og ábyrga hönnun gagnavers fyrirtækisins á Akureyri. Í þessum flokki atti atNorth kappi við þrjú önnur alþjóðleg gagnaversfyrirtæki. Þá var gagnaver atNorth á Akureyri líka tilnefnt í flokki gagnaversverkefna ársins í Evrópu.

Fram kemur í fréttatilkynningu frá atNorth að verðlaunin, sem eru fyrir áþreifanlegan árangur við að draga úr umhverfisáhrifum gagnavera, hafi verið veitt við hátíðlega athöfn í Lundúnum fyrr í desember. Úrslitum réði hönnunarupplegg stækkunar gagnaversins á Akureyri og áherslur atNorth á að sameina umhverfisvernd og félagsleg og efnahagsleg áhrif til að tryggja sjálfbæran vöxt til langframa.

„Við erum hæstánægð með að ICE03 gagnaver okkar á Akureyri hafi hlotið viðurkenningu fyrir jákvæð áhrif á staðbundið umhverfi sitt,“ segir Eyjólfur Magnús Kristinsson, forstjóri atNorth í fréttatilkynningunni. Gagnaverið á Akureyri nýtur góðs af svölu loftslagi og endurnýjanlegri orku, sem gerir dregur töluvert úr orkunotkun við kælingu tölvubúnaðar gagnaversins. Þá voru við byggingu þess notuð sjálfbær efni á borð við límtré í stað stálbita og íslensk steinull, auk þess sem gætt var að því að byggingar féllu vel að umhverfi og landslagi. Sömuleiðis gerir hönnun allra nýrra gagnavera atNorth ráð fyrir búnaði til endurnýtingar glatvarma, en á Akureyri á atNorth í samstarfi við Akureyrarbæ um nýtingu varmans til samfélagsverkefna.

Einnig leggur fyrirtækið upp með að framkvæmdir efli nærsamfélagið og efnahagslíf þess. Við byggingu fyrsta áfanga ICE03 á Akureyri komu yfir 90 prósent starfsmanna úr nærsamfélaginu og hefur fyrirtækið skuldbundið sig til staðbundinna ráðninga þar sem mögulegt er. Við veitingu verðlaunanna var horft til þess að gagnaverið gagnist ekki eingöngu notendum þess heldur einnig nærsamfélaginu og hagkerfi þess. 

Höfuðstöðvar atNorth eru í Hafnarfirði, en fyrirtækið rekur átta gagnaver á Norðurlöndum, þar af þrjú á Íslandi. Níunda gagnaver atNorth er í smíðum í Kouvola í Finnlandi og það tíunda í Ølgod í Danmörku. Þá hefur atNorth tryggt sér svæði undir risagagnaver í Sollefteå í Svíþjóð.