Fyrsti viðburður nýrrar Óperu verður í Hofi
Nýstofnuð ópera mun hefja starfsemi sína utan höfuðborgarsvæðisins með veglegum opnunarviðburði í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri í haust. Þar verður boðið upp á fjölbreytta og skemmtilega dagskrá þar sem Sinfóníuhljómsveit Norðurlands, einsöngvarar, kórar og leikarar leiða áheyrendur í gegnum helstu tímamót óperusögunnar og tengja þau við íslenska menningar- og hugmyndasögu.
Tilkynnt var um viðburðinn í frétt á vef Menningarfélags Akureyrar í dag. Að opnuninni lokinni verður viðburðurinn fluttur víðar um land, meðal annars til Egilsstaða og að endingu til Reykjavíkur. Meðal flytjenda verða söngvarar óperunnar auk leikara Þjóðleikhússins, en Óperan er hluti af starfsemi þess. Ólafur Egilsson leikstýrir opnunardagskránni í Hofi en miðasala verður auglýst síðar.
Sýningin er framleidd í samstarfi við Menningarfélag Akureyrar og koma öll svið félagsins að verkefninu, þar á meðal Sinfóníuhljómsveit Norðurlands, Leikfélag Akureyrar og Menningarhúsið Hof. Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson, tónlistarstjóri Menningarfélags Akureyrar, segir það mikið gleðiefni að opnun óperunnar fari fram í Hofi og að það sendi skýr skilaboð um að óperan hyggist starfa fyrir landsmenn alla.
Finnur Bjarnason óperustjóri segir verkefnið afar spennandi og leggur áherslu á að mikilvægt sé að fólk um allt land fái tækifæri til að kynnast starfsemi óperunnar og taka þátt í henni frá upphafi.