Fara í efni
Menning

Frumflytja verk Roars Kvam – Magnificat

Kvennakórinn Embla undir stjórn Roars Kvam kemur fram á tónleikum í Glerárkirkju í dag, sunnudag, ásamt Margréti Árnadóttur sópran, Erlu Dóru Vogler mezzosópran og hljómsveit. Flutt verða tvö verk, Magnificat eftir stjórnandann, Roar Kvam, og Stabat Mater eftir Kim André Arnesen. Tónleikarnir hefjast kl. 17.00.

Verkið Magnificat eftir Roar Kvam verður frumflutt í dag. „Magnificat hefur verið tónskáldum innblástur í margar aldir, textinn úr Lúkasarguðspjalli fjallar um vitjun Maríu og varpar ljósi á stolt mennskunnar og guðlega miskunn,“ segir í tilkynningu vegna tónleikanna. Verkið skrifar Roar fyrir Kvennakórinn Emblu, tvo einsöngvara og 11 manna hljómsveit.

Roar Kvam tónskáld og stjórnandi kvennakórsins Emblu. Mynd: Rakel Hinriksdóttir.

Stabat Mater eftir Kim André Arnesen er byggt á 13. aldar sálmatextum sem fjalla um sálarangist Maríu við krossinn. Verkið var samið árið 2018, fyrir kvennakór, 2 einsöngvara og kammerhljómsveit.

  • Tónleikarnir í Glerárkirkju í dag hefjast klukkan 17:00 sem fyrr segir.
  • Miðaverð er 5.000 krónur og miðasala er við innganginn.
  • Miðasala opnar hálftíma fyrir viðburð.