Frissi fríski: einn sá vinsælasti hér á landi
SÖFNIN OKKAR – 134
Frá Iðnaðarsafninu á Akureyri_ _ _
Akureyri.net heldur áfram að opna dyr safnanna í bænum lesendum til fróðleiks og skemmtunar. Það er gert vikulega, á fimmtudögum.
Í fyrra fjölluðum við um fyrirtækið Akva sf innan KEA sem sérhæfði sig í útflutningi á íslensku drykkjarvatni, fyrst í fernum en síðar í flöskum. Gekk sá rekstur heldur brösuglega, en um var að ræða tilraunastarfsemi. Hins vegar urðu til aðrar hugmyndir út frá Akva sem urðu farsælli. Ber þar helst að nefna ávaxtasafa sem átti eftir að verða einn sá vinsælasti hér á landi um árabil. Það var Frissi fríski, sem eflaust margir lesendur muna eftir.

„Litli frissi“ var fyrst seldur í 330ml í umbúðum en síðar í 250ml. Fernan í miðjunni er 250ml en hinar tvær 330ml.
Frissi fríski kom á markaðinn árið 1994, en hann var fyrst kynntur til leiks á Norðlenskum dögum í marsmánuði sama ár. Norðlenskir dagar var herferð á vegum KEA sem fór fram í matvöruverslunum félagsins þar sem ætlunin var að auka við kynningu og sölu á norðlenskum vörum. Stuttu síðar var drykkurinn kominn í búðir og óhætt að segja að hann hafi strax slegið í gegn. Töluðu forsvarsmenn Mjólkursamlags KEA um hann sem markaðslegt undur. Drykkurinn var raunar lítið auglýstur en frekar lögð áhersla á vörukynningar og staðsetningu drykkjarins í búðunum, en hann var seldur sem kælivara. Það var einnig nýjung hér á landi að safinn var seldur í tveggja lítra fernum. Fljótlega var einnig hægt að fá hann í minni fernum, 330ml. Síðar var minni fernunni breytt í 250ml og um tíma var Frissi einnig seldur í eins lítra fernum.

Jólin 1996 kom á markaðinn Jóla-Frissi, appelsínusafi blandaður saman við maltöl. Hann varð ekki mjög vinsæll og ekki seldur fyrir næstu jól.
Ári síðar var ný bragðtegund kynnt til sögunnar; Frissi með eplabragði og varð hann líkt og appelsínusafinn afar vinsæll. Um aldamótin bættust svo við tvær tegundir til viðbótar; annars vegar blandaðir ávextir (blá ferna) og hins vegar ananas (gul ferna). Urðu þær báðar nokkuð vinsælar og um tíma var því hægt að fá Frissa með fjórum mismunandi bragðtegundum. Allar fernurnar voru í sama stílnum en í mismunandi litum og var brosandi ávöxtur þeirra helsta einkenni. Hönnuður fernanna var Kristján Kristjánsson auglýsingateiknari á Akureyri.

Um tíma var hægt að kaupa Frissa fríska frostpinna með appelsínu- og eplabragði.
Vegna velgengni Frissa var ýmis markaðssetning prófuð á þessum árum og næstu. Þær vörur féllu þó mis vel í kramið. Fyrir jólin 1996 var Jóla-Frissi seldur í búðum, en um var að ræða appsínusafa blandaðan saman við maltöl! Jóla-Frissi rataði ekki aftur í búðir. Ári síðar fór Safagerð KEA í samstarf við bæði Emmessís og Víking á Akureyri. Komu þá til sögunnar tvær gerðir af frostpinnum, epla- og appelsínulurkar sem og tveir gosdrykkir með sömu bragðtegundum. Hvorki gosdrykkirnir né frostpinnarnir voru lengi á markaðnum.

Ávaxtasafinn var markaðsettur með ýmsum hætti. Til dæmis voru gerðir pennar og reglustikur merktir safanum. Einnig var búið til pennaveski sem leit út eins og safaferna. Ef keyptur var kassi af Frissa fríska fylgdi með pennaveski, en einnig var hægt að taka þátt í leik og fá pennaveski í verðlaun.
Árið 2004 keypti Ölgerðin Egill Skallagrímsson ehf Frissa fríska og var hann áfram seldur undir sama nafni. Þá var drykkurinn enn afar vinsæll en samkeppni við aðra ávaxtadrykki, innlenda sem innflutta, var þó farin að segja til sín. Við einfalda leit á timarit.is er yngsta auglýsing á Frissa fríska frá 2010. Stuttu síðar var framleiðslu hans hætt. Höfðu þá umbúðirnar breyst umtalsvert. Í stað brosandi ávaxta var Frissi nú orðinn mennskur, klæddist ofurhetjubúningi og framan á honum bókstafurinn F. Voru þær umbúðir teknar upp um 2006.

Árið 1997 komu á markaðinn tvær gerðir af Frissa fríska gosi.

Auglýsing úr Íslendingi, 16. maí 1998, bls. 6.

Frissa fríska var hægt að fá með fjórum mismunandi bragðtegundum þegar mest var.