Fara í efni
Fréttir

Framkvæmdir hafnar við brú yfir Glerá

Mynd: Þorgeir Baldursson

Framkvæmdir eru hafnar við gerð brúar og stofnstígs yfir Glerá, ásamt jöfnunarstöð fyrir strætisvagna sunnan árinnar. Reiknað er með að framkvæmdum ljúki seinni hluta árs 2027.

Jöfnunarstöð fyrir strætisvagna bæjarins hefur um langt árabil verið í miðbæ Akureyrar en vegna fyrirhugaðra byggingaframkvæmda við Hofsbót þurfti að finna henni annan stað. Eftir að ýmsir kostir höfðu verið skoðaðir var ákveðið að jöfnunarstöðin yrði við Borgarbraut, norðan Glerártorgs.

Jöfnunarstöð fyrir strætó færist úr miðbænum að Glerá. Tölvugerð mynd frá Akureyrarbæ.

Mynd: Skapti Hallgrímsson

Auk stöðvarinnar var ákveðið að ráðast í byggingu göngubrúar yfir Glerá, stígagerð fyrir aðliggjandi göngu- og hjólastíga ásamt gangbraut yfir Borgarbraut til móts við Glerártorg. Samið var við SS Byggi um framkvæmdina, eftir að tvívegis hafði verið reynt að bjóða verkið út.

Ný brú yfir Glerá fyrir gangandi og hjólandi mun bæta umferðaröryggi verulega. Tölvugerð mynd frá Akureyrarbæ.

Mynd: Þorgeir Baldursson