Fara í efni
Fréttir

Framkvæmdir ganga vel við innilaugina

Framkvæmdir við innisundlaugina hófust í október í fyrra og ganga vel. Allt er að verða klárt fyrir flísalögn. Þegar blaðamaður leit við stóð yfir vinna við loftræstisstokk. Mynd: SNÆ

Framkvæmdir við innilaugina í Sundlaug Akureyrar ganga vel og stefnt er að verklokum fyrir skólabyrjun í haust. Flísalögn hefst á næstu dögum. 

Eins og Akureyri.net hefur áður sagt frá standa yfir umfangsmiklar framkvæmdir við nýja og endurbætta innisundlaug  og eru framkvæmdir á áætlun að sögn Gísla Rúnars Gylfasonar, forstöðumanns sundlauga Akureyrar,

Spennistöð Norðurorku var áður staðsett í kjallararými Sundlaugarinnar á Akureyri en hefur nú verið flutt í forsmíðað hús norðanmegin við sundlaugarbygginguna. Frágangur í kringum stöðina er í gangi. 

Lokun við Þingvallastræti

Vegna framkvæmdanna hefur síðustu daga þurft að loka fyrir umferð um Þingvallastræti frá Þórunnarstræti. Þessi lokun verður í nokkra daga í viðbót, eða þar til vinnu við nýja spennistöð norðan megin við sundlaugina lýkur. Stöðvarhúsið er nú risið en verið er að grafa og tengja stöðina. Vinnutækin sem þarf í þessa vinnu eru plássfrek og þess vegna var þessum hluta götunnar lokað af öryggisástæðum. Gísli Rúnar segir annars spennandi tíma vera fram undan í verkefninu þar sem allt niðurrif er búið sem og mikil vinna sem sést ekki. „Næsta skref er í raun bara að múrararnir mæti og fari að flísaleggja og þá fer eitthvað að gerast fyrir augað. Við erum að fara að sjá það bara á næstu dögum,” segir Gísli Rúnar.

Allt að gerast við Sundlaug Akureyrar en bannað er að keyra niður Þingvallastræti frá Þórunnarstræti af öryggisástæðum á meðan að vinna stendur yfir við tengingu nýrrar spennistöðvar við sundlaugarhúsið.