Fara í efni
Menning

Forðabúr hjartans – 43 úr heimabyggð í Hofi

Forðabúr hjartans - samsýning 43 listamanna. Aðsend mynd.

Forðabúr hjartans – Sýning 43 félaga í Myndlistarfélaginu opnar í Menningarhúsinu Hofi um helgina. Í fréttatilkynningu segir að opnunin verði á morgun, laugardaginn 4. maí kl. 16.

Á Akureyri og nágrenni starfar fjölbreyttur hópur ólíkra myndlistarmanna sem endurspeglar gróskuna á sviði myndlistar. Myndlistin hefur sitt einstaka tjáningarform sem endurómar á óteljandi mismunandi vegu og tjáir sjónarhorn, viðhorf og tilfinningar, en fyrst og fremst er myndlist sjónræn upplifun og hún er okkur mikilvæg því hún nærir, vökvar, frjóvgar og býr til forðabúr, forðabúr hjartans.

Á sýningunni Forðabúr hjartans er myndlist eftir fjörutíu og þrjá ólíka myndlistarmenn sem veita okkur innsýn í myndheim sinn.„Þetta er sýning 43 listamanna sem endurspeglar þessa gríðarlegu grósku sem er hér á sviði myndlistar,“ segir Brynhildur Kristinsdóttir, formaður Myndlistafélagsins, en félagið var stofnað í janúar árið 2008 og er eitt aðildarfélaga Sambands íslenskra myndlistarmanna.

Sýningin stendur fram í ágúst.