Fögnuðu hálfrar aldar afmæli Raftákns
Verkfræðistofan Raftákn var stofnuð 1. júní árið 1976 og hafði því verið starfandi í 50 ár um nýliðin mánaðamót. Tímamótunum var fagnað í afmælishófi í menningarhúsinu Hofi á föstudaginn þar sem saman voru komnir starfsmenn, ýmsir viðskiptavinir og fleiri gestir.
Fyrirtækið, verkfræðistofa á rafmagnssviði, var stofnað af tvennum hjónum á Akureyri, Árna V. Friðrikssyni, Gerði Jónsdóttur, Jóhannesi Axelssyni og Sigrúnu Arnsteinsdóttur, og sunnanmönnunum Jóni Otta Sigurðssyni, Daða Ágústssyni og Gunnari Ámundasyni. Akureyringar keyptu hlut þeirra síðarnefndu að nokkrum árum liðnum, Árni og Jóhannes seldu sinn hlut þegar þeir settust í helgan stein og fyrirtækið er alfarið í eigu starfsmanna.
Hjá Raftákni starfa nú 35 manns, verkfræðingar, tæknifræðingar, iðnfræðingar, tækniteiknarar og skrifstofufólk. Höfuðstöðvar eru á Akureyri en útibú á borgarhorninu.

Árni V. Friðriksson, einn stofnenda Raftákns og framkvæmdastjóri lengst af, og Eva Hlín Dereksdóttir, núverandi framkvæmdastjóri.
Sterkt, samheldið lið
„50 ár eru hálf öld af verkefnum, viðskiptavinum, áskorunum og samstarfsfélögum. Þegar ég sótti um sem framkvæmdastjóri Raftákns árið 2018 óraði mig ekki fyrir því hvert það myndi leiða mig, að þessi tími myndi líða svona hratt og yrði svona skemmtilegur en jafnframt krefjandi,“ sagði Eva Hlín Dereksdóttir framkvæmdastjóri Raftákns þegar hún ávarpaði viðstadda í Hofi. „Ég tók við af Árna Friðrikssyni en hann var einn af stofnendum félagsins og leiddi það nánast frá stofnun og þar til hann hætti. Það var vel tekið á móti mér og leið mér strax eins og ég væri hluti af liðinu, hluti af sterku og samheldnu liði, liði sem ég held hreinlega að geti allt.“
Evu finnst oft gott að nota samlíkinguna við íþróttalið þegar hún talar um liðsheild. „Hæfni nokkurra leikmanna getur orðið til þess að einn leikur vinnst, en mótin vinnast á liðsheildinni. Hæfni og dugnaður nokkurra starfsmanna getur leyst eitt verkefni, en 50 ára saga af stórum sem smáum verkefnum verður aðeins til með liðsheildinni,“ sagði hún. „Okkur hefur borið gæfa til að fá til okkar starfsfólk með fjölbreyttan bakgrunn og ólíka styrkleika, fólk sem styrkir heildina. En ég held líka að þrautseigja og ástríða stofnendanna hafi fylgt félaginu þessi 50 ár og smitast inn í stækkandi starfsmannahóp, jafnvel löngu eftir að þeir luku sinni starfsævi.“

Forláta róbot sótti drykki að rafrænni beiðni veislugesta og fjarlægði tappa af flöskum.
Að gera betur en síðast
„Ég spurði starfsmann um daginn hvert væri hans markmið við lausn verkefna,“ sagði Eva. „Hann svaraði því til að hann reyndi alltaf að leysa sérhvert verkefni betur en síðasta verkefni, hann vildi alltaf betrumbæta lausnir sem hafa samt sannað gildi sitt. Ef maður spyr hvað séu skemmtilegustu verkefnin þá er svarið „bara eitthvað nógu flókið, jafnvel því sem næst óleysanlegt“. Við þrífumst á áskorunum og brennum fyrir því að finna bestu lausnirnar fyrir viðskiptavini okkar, rétt eins og stofnendurnir gerðu fyrir 50 árum.“
Eva sagði að fyrirtækinu hefði ekki bara lánast að fá hæft starfsfólk í gegnum tíðina „heldur höfum við einnig unnið með mörgum góðum samstarfshönnuðum, birgjum og verktökum gegnum tíðina. Í sumum tilfellum er um að ræða samstarf til margra áratuga, sem hefur reynst gjöfullt fyrir okkur og þá og margir þeirra eru hér með okkur í dag.“

Gunnlaugur Búi Ólafsson starfsmaður Raftákns útskýrir hvernig róbotinn, sem nefndur var að ofan, virkar.
Eva Hlín sagði ekki hægt að búa til 50 ára sögu fyrirtækis nema umhverfið sé gott og jarðvegurinn frjór. „Bærinn okkar, Akureyri, hefur svo sannarlega reynst frjór jarðvegur fyrir félagið okkar. Hann hefur reynst góður viðskiptavinur, treyst okkur fyrir ýmsum verkefnum tengdum innviðum okkar samfélags, en auk þess er gott að búa hér. Einstaklingar sem fara suður eða út í heim og mennta sig kjósa margir að snúa aftur heim og það er verðmætt fyrir fyrirtæki eins og okkar sem þarfnast vel menntaðra og hæfra starfsmanna.“
Hún sagði bæjarbraginn skemmtilegan og fjölskylduvænan, þjónusta væri góð „og svo er jú alltaf besta veðrið hér ekki satt. Við hjá Raftákni höfum einnig lagt okkur fram um að styrkja samfélagið okkar, með vinnu og styrkjum og lagt okkar lóð á vogarskálarnar til að stuðla að öflugu samfélagi. Það skiptir okkur verulegu máli að atvinnulífið hér í bænum sé fjölbreytt og sterkt og að svæðið sé eftirsóknarvert til búsetu til langs tíma. Við munum halda áfram að leggja okkar af mörkum og leitast við að skapa fleiri störf fyrir öfluga einstaklinga.“

Logi Már Einarsson, menningar-, nýsköpunar og háskólaráðherra, ávarpaði gesti í afmælishófi Raftákns.
Rafmagn knýr áfram samfélög
Raftákn hefur tekið að sér verkefni um allt land í gegnum árin en „hefur ávallt haft sterkar rætur hér á Akureyri“ sagði Eva Hlín. „Skrifstofa okkar fyrir sunnan flutti nýlega í stærra og betra húsnæði og hefur sú starfsemi blómstrað á undanförnu ári enda verkefnastaðan góð og starfsmannahópurinn öflugur. Við stefnum að því að festa enn betur rætur á höfuðborgarsvæðinu og tvöfalda starfsmannafjöldann á komandi árum, en nýtt og glæsilegt húsnæði var lykilforsenda þeirrar vegferðar.“
Hún segir starfsmenn fyrirtækisins líta framtíðina björtum augum og vonist til þess að næstu 50 ár verði jafn skemmtileg og gjöful og þau 50 sem liðin eru, „að félagið haldi áfram að skapa virði fyrir viðskiptavini, samstarfsaðila og starfsmenn. Við erum og verðum áfram virkir þátttakendur í því að hjálpa viðskiptavinum að nýta tækifærin sem felast í sjálfvirkni og þriðju iðnbyltingunni. Rafmagn knýr áfram samfélög og er hreyfiafl 21. aldarinnar, og þar erum við svo sannarlega á heimavelli og ætlum okkur stóra hluti,“ sagði Eva Hlín Dereksdóttir.

Njáll Trausti Friðbertsson alþingismaður og Logi Már Einarsson ráðherra.