Fljúgandi blaðlýs pirra Akureyringa
Vængjaðar blaðlýs eru áberandi á Akureyri þessa dagana og sjást á flögri víða um bæinn, oft í mjög stórum hópum. Óþarfi er þó að örvænta því flugurnar eru með öllu skaðlausar mönnum samkvæmt upplýsingum frá Meindýravörnum MVE og leita ekki inn í híbýli fólks.

Þessi var mynduð á gulu æfingavesti á fótboltaæfingu. Mynd: Haraldur Ingólfsson.
Flugurnar geta hins vegar verið mjög hvimleiðar í svona miklu magni, en þær sækja í ljósa liti, t.d. í þvott sem hangir utandyra til þerris. Samkvæmt frétt á vef RÚV, þar sem rætt er við Erling Ólafsson skordýrafræðing, fá ákveðnar tegundir blaðlúsa vængi á haustin. Tilgangurinn með því er að lúsin geti dreift sér sem víðast. „Það hafa verið einhver skilyrði, einhver almenn skilyrði eða veðurskilyrði, sem hafa valdið því að svona mikið af blaðlúsum hafi farið á kreik,“ segir Erlingur í samtali við RÚV. Þessi mikli fjöldi af fljúgandi blaðlúsum þetta haustið er því líklega sambland af þurru og hlýju veðri á Akureyri.

Hurð á heimili í þorpinu þakin flugum en flugan virðist m.a. leita í gult. Mynd: Harpa Hjarðar